29. fundur
29. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
Fjarfundur
08.03.2021
Kl. 16:00 - 17:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Ólöf Breiðfjörð
Dagskrá
01
Útibú bókasafns í Urriðaholti og Álftanesi og kynning á breytingum á aðalsafni
Gestur fundarins, Margrét Sigurgeirsdóttir forstöðumaður Bókasafns Garðabæjar, gerði grein fyrir stöðu mála á útibúum bókasafnsins í Urriðaholti og Álftanesi. Lagt upp með að opnunartími á Álftanesi verið samfelldur að loknum skólatíma og auk þess verði safnið opið einn laugardag í mánuði. Stefnt að opnun Urriðaholtssútibús fyrir almenning um áramót 21/22. Margrét greindi frá ánægju með breytingar á aðalsafni sem gerir móttöku skólahópa auðveldari.
Fylgiskjöl
02
Menningardagskrá v. vígslu fjölnota íþróttahúss
Eiríkur Björn Björgvinsson sviðstjóri fræðslu- og menningarsviðs greindi frá stöðu mála í undirbúningi stórtónleika í tilefni vígslu fjölnota íþróttahúss vorið 2022. Verið er að vinna að kostnaðaráætlun og viðræður hafnar við umboðsmann tónlistarmanna.
Fylgiskjöl
03
Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2020
Rætt um niðurstöður þjónustukönnunar sem Gallup gerði í lok árs 2020. Farið var yfir niðurstöður könnunarinnar sem snúa að menningarmálum.
04
Jazzhátíð Garðabæjar 2021
Menningarfulltrúi kynnti samstarfssamning við Sigurð Flosason vegna skipulagningar Jazzhátíðar Garðabæjar sem undirritaður verður á allra næstu dögum. Einnig voru hugsanlegir dagskrárliðir næstu Jazzhátíðar kynntir en hún mun fara fram 22. - 25. apríl nk.
Fylgiskjöl
05
Barnamenningarhátíð í Garðabæ 2021
Dagskrá Barnamenningarhátíðar í Garðabæ 2021
Menningarfulltrúi kynnti dagskrá Barnamenningarhátíðar í Garðabæ sem fer fram dagana 19. - 24. apríl. Dagskráin skiptist í langtímaverkefni, skólahópadagskrá og fjölskyldudagskrá. Langtímaverkefnum lýkur með sýningum, annarsvegar á 500 leirfuglum barna sem sótt hafa smiðjur í Hönnunarsafni Íslands og hinsvegar myndskreyttum ljóðum leikskólabarna á Bókasafni Garðabæjar. Dagskrá fyrir 1., 3., 5., 7. bekk auk unglingastigs fer fram í Hönnunarsafni, Bókasafni Garðabæjar og á yfirbyggðum svæðum á Garðatorgi. Fjölskyldudagskrá laugardaginn 24. apríl fer einnig fram á Bókasafni, Hönnunarsafni, á yfirbyggðum svæðum og í Tónlistarskóla Garðabæjar. Markmið hátíðarinnar er að gefa börnum tækifæri á að taka þátt í að skapa og njóta menningar í sínu nærumhverfi.
Fylgiskjöl
06
Önnur menningarmál
Menningarfulltrúi gerði grein fyrir fyrirlestri sem hún hélt fyrir nema Háskóla Íslands í safnafræði þar sem menningarstarf í Garðabæ var kynnt.