Jazzhátíð Garðabæjar 2022 í Sveinatungu
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
40. fundur
Menningarfulltrúi kynnti dagskrá Jazzhátíðar Garðabæjar sem nú verður haldin í 16. sinn dagana 21.-24. apríl nk. Hátíðin samanstendur að þessu sinni af fimm tónleikum sem konur leiða; Ellen Kristjánsdóttir, danska jazzsöngkonan Cathrine Legardh, Marína Ósk Þórólfsdóttir, Sunna Gunnlaugsdóttir og Anna Gréta Sigurðardóttir. Fernir tónleikar fara fram í Sveinatungu og einir í Jónshúsi eins og venja er. Listræna stjórn annast Sigurður Flosason en menningarfulltrúi verkstýrir verkefninu og sér jafnframt um kynningarmál.
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
39. fundur
Menningarfulltrúi greindi frá undirbúningi Jazzhátíðar Garðabæjar 2022 sem fer fram dagana 21. - 24. apríl nk.Gert er ráð fyrir að hátíðin hefjist að kvöldi Sumardagsins fyrsta.
Menningarfulltrúi mun áfram vinna að skipulagningu hátíðarinnar, þ.m.t. dagskrárgerð og kynningarmálum með Sigurði Flosasyni listrænum stjórnanda Jazzhátíðar Garðabæjar.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
30. fundur
Samstarfssamningur
Undirritun samstarfssamnings við Sigurð Flosason hefur farið fram og drög að jazzhátíð 22.-25. apríl kynnt en hátíðin mun fara fram í beinu streymi frá Tónlistarskóla Garðabæjar.
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
04
29. fundur
Menningarfulltrúi kynnti samstarfssamning við Sigurð Flosason vegna skipulagningar Jazzhátíðar Garðabæjar sem undirritaður verður á allra næstu dögum. Einnig voru hugsanlegir dagskrárliðir næstu Jazzhátíðar kynntir en hún mun fara fram 22. - 25. apríl nk.
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
05
28. fundur
Viðræður við Sigurð Flosason um framkvæmd, staðsetningu og tímasetningu jazzhátíðar eru hafnar, menningarfulltrúa falið að vinna áfram að undirbúningi hátíðarinnar í samstarfi við Sigurð.