Viðræður við ríkið varðandi endurnýjun samnings um Hönnunarsafn Íslands
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
28. fundur
Í fjarveru sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs greindi formaður frá stöðu mála í viðræðum Garðabæjar við mennta- og menningarmálaráðuneyti varðandi nýjan samning um Hönnunarsafnið. Viðræðurnar snúast annars vegar um árlegt framlag ríkisins til reksturs safnsins og hins vegar um staðfestingu á því að stofnframlag ríkisins til safnsins sem kveðið var á í samningi aðilanna frá árinu 2006 sé enn í fullu gildi og hvernig það verði greitt.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
23. fundur
Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs skýrði frá fundi sem hann átti þann 26. ágúst sl. með mennta- og menningarmálaráðherra og fulltrúum mennta- og menningarmálaráðuneytis um málefni Hönnunarsafns Íslands. Fyrir hönd bæjarins sátu einnig stjórnarformaður og forstöðumaður Hönnunarsafnsins, formaður menningar- og safnanefndar og menningarfulltrúi fundinn.