Leiklistarstarfsemi á Garðatorgi
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
22. fundur
Áframhaldandi samningur um afnot af sal á Garðatorgi fyrir leiklistarstarfsemi Senuþjófsins.
Greint var frá starfsemi leiklistarhópsins Senuþjófsins á vegum Trausta Ólafssonar og fyrirhuguðum verkefnum hópsins næsta vetur. Upplýsingastjóra falið að ganga frá áframhaldandi samningi um afnot af sal á Garðatorgi fyrir starfsemi Senuþjófsins veturinn 2020-2021.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
12. fundur
Þessi liður verður ræddur eftir sameiginlegu dagskrárliðina.
Áframhaldandi umræður um leiklistarstarfsemi á Garðatorgi frá fundi nefndarinnar í apríl. Erindi Trausta Ólafssonar, dags. 14. apríl 2019, um áframhaldandi afnot af sal á Garðatorgi til að starfrækja leiklistarstarfsemi var lagt fram.
Menningar- og safnanefnd tekur jákvætt í erindið og felur upplýsingastjóra að skoða nánar um áframhaldandi samning um afnot af salnum frá ágúst 2019 til maí 2020.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
10. fundur
Formaður greindi frá nýlegum fundi með Trausta Ólafssyni sem hefur f.h. leiksmiðjunnar Friggjar verið með afnot af sal á Garðatorgi fyrir leiklistarstarfsemi sl. vetur.
Umræður voru um leiklistarstarfsemi í salnum. Umræðu verður haldið áfram á næsta fundi.