Blikanes 14 - DSK breyting - stækkun á byggingarreit
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
17. (857). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að synja tillögu um óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna umsóknar lóðareiganda að Blikanesi 14 um byggingu utan byggingarreits. Tillagan var grenndarkynnt og bárust athugasemdir þar sem umsókninni var mótmælt. Þá liggur fyrir neikvæð afstaða deiliskipulagsráðgjafa.
Bæjarráð Garðabæjar
02
44. (1905). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að synja tillögu um óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna umsóknar lóðareiganda að Blikanesi 14 um byggingu utan byggingarreits. Tillagan var grenndarkynnt og bárust athugasemdir þar sem umsókninni var mótmælt. Þá liggur fyrir neikvæð afstaða deiliskipulagsráðgjafa.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
16. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Arnarness að lokinni grenndarkynningu vegna umsóknar lóðareiganda að Blikanesi 14 um byggingu utan byggingareits. Tillagan gerði ráð fyrir stækkun byggingareits til vesturs og fyrir viðbyggingu við bílageymslu á neðri hæð hússins ásamt svölum ofan á bílskúr. Lagðar fram athugasemdir sem bárust ásamt umsögn deiliskipulagsráðgjafa. Umsækjanda hefur verið kynntar athugasemdir sem bárust í grenndarkynningu og þá hefur verið fundað með umsækjanda og hönnuði. Í framhaldi af þeim fundi lagði hönnuður fram nýja tillögu þar sem felldar eru niður svalir á þaki bílskúrs til að koma til móts við innsendar athugasemdir en áfram er gert ráð fyrir breikkun á bílskúr um 85 cm eða 3,15 m frá lóðarmörkum lóðarinnar nr. 12 við Blikanes, miðað við áður kynnt gögn frá 2016. Lagt er fram minnisblað tækni- og umhverfissviðs. Það er mat skipulagsnefndar að breytingin sé fordæmisgefandi og hafi áhrif á heildargötumynd svæðisins eins og bent er á í athugasemdum sem bárust í grenndarkynningu sem og í umsögn deiliskipulagsráðgjafa. Með vísan til þess leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að umsókninni verði hafnað. Tækni-og umhverfissviði falið að skoða hvort æskilegt sé að skoða mögulegar stækkanir á byggingarreitum fyrir lóðir við Blikanes og Mávanes að ofanverðu með deiliskipulagsbreytingu. Skipulagsstjóri vék af fundi undir þessum lið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
14. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Arnarness að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits til vesturs fyrir viðbyggingu við bílageymslu á neðri hæð hússins.
Lagðar fram athugsemdir sem borist hafa. Málinu vísað til úrvinnslu hjá tækni- og umhverfissviði.
Skipulagsstjóri vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
7. (847). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Arnarness í tilefni umsóknar lóðareiganda að Blikanesi 14 um byggingu utan byggingarreits. 2, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Bæjarráð Garðabæjar
06
16. (1877). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Arnarness í tilefni umsóknar lóðareiganda að Blikanesi 14 um byggingu utan byggingarreits. 2, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
6. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir byggingarreit fyrir bílskúr á neðri hæð framan við núverandi hús. Tillaga þess efnis hefur áður verið grenndarkynnt þegar að ekki var deiliskipulag fyrir hendi. Framlögð tillaga er með bílageymslu sem er 1 metra breiðari og nær lóðarmörkum en fyrri tillaga.
Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum allra húsa í Blikanesi og Tjaldanesi 11 og 15.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
4. fundur
Lögð fram umsókn lóðarhafa um stækkun byggingareits fyrir viðbyggingu við neðri hæð hússins þar sem gert verður ráð fyrir bílageymslu.
Lögð fram umsögn deiliskipulagsráðgjafa sem mælir ekki með því að byggingarreitur verði stækkaður eins og tilllagan gerir ráð fyrir.
Umsögn vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði. Umsækjanda skal gefinn kostur á að tjá sig um niðurstöðu umsagnar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
3. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir 6,5 metra breiðum byggingarreit bílageymslu í með gólfkóta 35 cm lægri en kjallari hússins. Viðbygging samkvæmt tillögu nær 6,5 m út fyrir byggingarreit, er 3.15 m frá lóðarmörkum að húsi nr. 12. Fjarlægð bílageymslu frá lóðarmörkum að götu yrði 10,5 m.
Byggingarleyfisumsókn þar sem gert var ráð fyrir 5,3 m breiðri bílageymslu í 5,5 m fjarlægð frá lóðarmörkum var vísað til grenndarkynningar árið 2016 og voru engar athugasemdir gerðar við þá tillögu. Umsækjandi óskar nú eftir breiðari bílageymslu se. Samþykki nágranna liggur fyrir.
Nú hefur deiliskipulag Arnarness endanlega tekið gildi. Í auglýsingu voru engar athugasemdir gerðar við fjarlægð byggingarreita frá lóðarmörkum að götu sem er 17 m við Blikanes að ofanverðu. Sama á við Mávanes að ofanverðu. Umsækjandi hefur bent á að vegna þessa skipulags eru byggingarreitir þessara lóða talsvert minni en annara húsa í Arnarnesi. Skipulagsnefnd vísar málinu til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviðs og deiliskipulagsráðgjafa.