Vesturtún 28 - Umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 1810220
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
9. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn raðhússins að Vesturtúni 28 þar sem sótt er um að breyta bifreiðargeymslu í íbúðarherbergi. Byggingarfulltrúi vísar málinu til skoðunar hjá skipulagsstjóra.
Samkvæmt grein 3.1. í deiliskipulagsskilmálum Vesturtúns þá er heimilt að hafa bifreiðargeymslu í raðhúsum en ekki eru um skyldu að ræða. Skipulagsstjóri gerir þar af leiðandi fyrir sitt leyti ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt fyrir íbúðarrými þar sem nú er bifreiðargeymsla.