Urðargata 1, 3 og 5, dsk breyting
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
16. (838). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsstjóra um óverulega breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Urðargötu 1, 3 og 5. Grenndarkynning fellur niður þar sem breytingin varðar ekki aðra en umsækjanda og sveitarfélagið, sbr. 1. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
03
41. (1856). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsstjóra um óverulega breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Urðargötu 1, 3 og 5. Grenndarkynning fellur niður þar sem breytingin varðar ekki aðra en umsækjanda og sveitarfélagið.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
04
9. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir aukningu byggingarmagns raðhúsanna Urðargata 1,3 og 5 sem nemur gluggalausum rýmum á neðri hæð húsanna. Breytingin hlýst af landlagsmótun lóðanna og undirbyggingu húsanna. Þar sem um er að ræða gluggalaus rými sem nýtast sem geymslur og tæknirými og eru án grenndaráhrifa samþykkir skipulagsstjóri breytinguna sem óverulega. Grenndarkynning felld niður þar sem að áhrif breytingarinnar hafa engin grenndaráhrif og varða því aðeins umsækjanda og sveitarfélagið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
13. fundur
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu og umsögn deiliskipulagshöfundar. Umsókn gerir ráð fyrir aukningu byggingarmagns lóðarinnar sem nemur gluggalausum rýmum á neðri hæð. Frágangur lóðarinnr er með þeim hætti að á aftari hluta neðri hæðar yrði að fylla upp í gluggalaus rými til þess að uppfylla ákvæði um heildar byggingarmagn. Grenndaráhrif viðbótarrýma er hverfandi. Vísað til skipulagsstjórat til frekari skoðunar og til afgreiðslu.