3. fundur
3. fundur
Öldungaráð
í Ísafold, Strikinu 3
28.08.2019
Kl. 08:30 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Anna Guðrún Hugadóttir - aðalmaður
- Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
- Ástbjörn Egilsson - aðalmaður
- Ólafur J Proppé - aðalmaður
- Guðlín Jóna Ómarsdóttir - aðalmaður
- Svanhildur Þengilsdóttir - forstöðumaður
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Hildigunnur Árnadóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1812061
01
Fundargátt nefndarmanna - breytt innskráning - rafræn skilríki - netföng
Bæjarfulltrúar og nefndarmenn fá netföng hjá Garðabæ sem notuð eru til að senda fundarboð og eiga önnur samskipti vegna starfa sinna fyrir Garðabæ.
Farið yfir mikilvægi þess að nefndarfólk virki ný Garðabæjar netföng með því að fara inn á minn Garðabæ. Næsti fundur öldungaráðs mun verða boðaður í gegnum ný netföng.
Málsnúmer 1710101
02
Stefna í málefnum eldri borgara - Aðgerðaráætlun
Svanhildur Þengilsdóttir fer yfir aðgerðaráætlun í málefnum eldri borgara og stöðu verkefna.
Svanhildur Þengilsdóttir fór yfir stöðu aðgerðaráætlunar. Svanhildur mun boða til vinnufunda vegna endurskoðunar áætlunarinnar og munu Ástbjörn Egilsson og Ólafur S. Proppé vera fulltrúar eldri borgara í þeirri vinnu. Drög að nýrri aðgerðaráætlun verður lögð fram á næsta fundi öldungaráðs.
Málsnúmer 1905140
03
Forvarnarvika í Garðabæ 2019
Vikuna 9-16 október verður forvarnarvika í Garðabæ. Áhersla verður lögð á að höfða til fleiri aldurshópa en verið hefur og að horft verði til allra íbúa Garðabæjar þegar forvarnir eru annars vegar. Óskað eftir umræðu um hvernig einkunarorð forvarnarvikunnar: Vinátta, félagsleg tengsl og samvera getur stuðlað að bættum lífsskilyrðum í hópi eldri borgara í Garðabæ.
Farið var yfir inntak forvarnarvikunnar og fagnar öldungaráð þeirri stefnu sem hefur verið mörkuð að höfða til allra íbúa Garðabæjar. Rætt um að eyrnamerkja vikuna 9-16. október forvörnum og voru hugmyndir um erindi og framsetningu settar fram. Fyrirhugaður er samráðsfundur undirbúningshóps vegna forvarnarviku og var ákvörðun tekin um að Ólafur S. Proppé og Stefanía Magnúsdóttir sætu þann fund fyrir hönd eldri borgara. Svanhildur Þengilsdóttir og fulltrúar félags eldri borgara munu fylgja málinu eftir.
Málsnúmer 1902056
04
Tillaga um að gerð verði könnun meðal eldri borgara varðandi nýtingu á þeirri heilsurækt sem er í boði í Garðabæ.
Formleg viðhorfskönnun til eldri borgara í Garðabæ varðandi heilsurækt.
Rætt um framkvæmd viðhorfskönnunar til eldri borgara í Garðabæ og mikilvægi þess að kalla fram vilja eldri borgara til framboðs á heilsurækt í Garðabæ. Svanhildur Þengilsdóttir mun fylgja málinu eftir.