Tillaga um að gerð verði könnun meðal eldri borgara varðandi nýtingu á þeirri heilsurækt sem er í boði í Garðabæ.
Ferill máls
Öldungaráð
01
3. fundur
Formleg viðhorfskönnun til eldri borgara í Garðabæ varðandi heilsurækt.
Rætt um framkvæmd viðhorfskönnunar til eldri borgara í Garðabæ og mikilvægi þess að kalla fram vilja eldri borgara til framboðs á heilsurækt í Garðabæ. Svanhildur Þengilsdóttir mun fylgja málinu eftir.
Öldungaráð
02
2. fundur
Tillaga um að gerð verði könnun meðal eldri borgara varðandi nýtingu á þeirri heilsurækt sem er í boði í Garðabæ.
Í samantekt um fjölda þeirra eldri borgara sem eru að nýta sér heilsurækt á árinu 2018 þá kemur fram að tæplega 1500 (1489) skráningar eru fyrir hendi og að tæplega 2000 (1988) manns eru að nýta sér þá heilsurækt sem í boði er. Öldungaráð benti á mikilvægi þess að koma upp skráningarkerfi sem varpar nákvæmu ljósi á nýtinguna ekki síst til að draga fram fjölda þeirra sem ekki eru þátttakendur í heilsurækt fyrir eldri borgara.
Öldungaráð leggur áherslu á að gerð verði formleg spurningakönnun fyrir eldri borgara í Garðabæ þar sem spurt er um viðhorf til þeirrar heilsuræktar sem í boði er, hvort fólk er í annari heilsurækt en þeirri sem í boði er í Garðabæ og hvaða viðbætur fólk vilji sjá í framboðinu. Er forstöðumanni stuðningsþjónustu- og öldrunarála falið að framkvæma þessa könnun.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
03
9. fundur
Úttekt íþróttafulltrúa Garðabæjar á þátttöku 67 ára og eldri íbúa Garðabæjar í frístundastarfi innan bæjarmarkanna.
Íþróttafulltrúa Garðabæjar sýndi samantekt á þátttöku 67 ára og eldri íbúa Garðabæjar í frístundastarfi innan bæjarmarkanna. ÍTG hvetur til þess að skráningu þátttakenda í hvers kyns frístundastarf verði bætt.
Fylgiskjöl
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
04
8. fundur
KJ lagði fram tölur um þátttöku íbúa í Garðabæ 68 ára eða eldri á árinu 2018 í mismunandi heilsuræktar og frístundatilboðum. Vinna þarf mun meira í því að greina þátttöku þessa aldurshóps. Unnið verður áfram að því fyrir næsta fund.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
2. (842). fundur
Harpa Þorsteinsdóttir kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
"Við í Garðabæjarlistanum leggjum til að gerð verði könnun á því hvernig eldri borgarar í Garðabæ eru að nýta sér þá heilsurækt sem í boði er með það að markmiði að fá betri yfirsýn yfir það hvernig hægt sé að mæta þörfum allra íbúa. Markmiðið væri að greina hvaða hópur eldri borgara er að nýta þá þjónustu sem nú þegar er til staðar, hversu hátt hlutfall kýs að leita annað og borga þá þjónustu að fullu og þá er mikilvægt að greina þann hóp sem ekki nýtir sér nein úrræði og af hverju."
Greinargerð:
Heilsurækt fyrir eldri borgara þarf að vera fjölþætt, hvetjandi og aðgengileg fyrir íbúa 65 ára og eldri. Um er að ræða stækkandi hóp samfélagsins og má gera ráð fyrir aukinni eftirspurn og öðrum útfærslum sem þarft er að bregðast við. Með því að greina notkunina á þeirri heilsurækt sem stendur íbúum til boða og þann hóp sem ekki nýtir sér þau úrræði fáum við skýrari mynd af því hvernig hægt er að svara eftirspurn og þannig stuðla að heilsueflingu og aukinni virkni eldra fólks. Það er ábyrgð þeirra sem fara með stjórn í sveitarfélögum að finna leiðir til þess að sem flestir íbúar geti viðhaldið góðri heilsu.
Björg Fenger, ræddi framkomna tillögu að lagði til að tillögunni verði vísað til íþrótta- og tómstundaráðs.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi að nýju framkomna tillögu.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna tillögu.
Gunnar Einarsson, ræddi framkomna tillögu.
Afgreiðsla mála.
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða að vísa framkominni tillögu um könnun meðal eldri borgara til íþrótta- og tómstundaráðs.