9. fundur
9. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í íþróttamiðstöðinni Ásgarði
10.04.2019
Kl. 17:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - aðalmaður
- Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
- Guðrún Jónsdóttir - aðalmaður
- Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
- Ómar R. Valdimarsson - varamaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 1903340
01
Tillaga um um sundkort til ungmenna
ÍTG samþykkir að senda sérstaka hvatningu til ungmenna f.2001-2004 um að stunda skipulagt íþrótta- og tómstundastarf og að nýta sér Hvatapeninga.
ÍTG bendir einnig á að öll börn 17 ára og yngri fá gjaldfrjálsan aðgang að sundlaugunum í Ásgarði og á Álftanesi.
Málsnúmer 1902136
02
Hvatapeningar 2018 nýting
Yfirlit síðustu 5 ára og þróun árganga og aldurshópa í nýtingu Hvatapeninga.
Íþróttafulltrúi lagði fram yfirlit yfir nýtingu árganga og aldurshópa á Hvatapeningum síðustu 5 árin. Ljóst er að fleiri eru að nýta sér Hvatapeninga eftir að þeir hækkuðu í 50.000,- kr. en mjög dregur úr nýtingu aldurshópa eftir 15 ára aldur og minnst er hún hjá þeim sem eru 18 ára.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1902056
03
Tillaga um að gerð verði könnun meðal eldri borgara varðandi nýtingu á þeirri heilsurækt sem er í boði í Garðabæ.
Úttekt íþróttafulltrúa Garðabæjar á þátttöku 67 ára og eldri íbúa Garðabæjar í frístundastarfi innan bæjarmarkanna.
Íþróttafulltrúa Garðabæjar sýndi samantekt á þátttöku 67 ára og eldri íbúa Garðabæjar í frístundastarfi innan bæjarmarkanna. ÍTG hvetur til þess að skráningu þátttakenda í hvers kyns frístundastarf verði bætt.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1811205
04
Forvarnarmál í Garðabæ
Forvarnaráætlanir skóla og kostnaðaráætlun þeirra veturinn 2018-2019. Samatekið af tómstunda- og forvarnarfulltrúa.
Tómstunda- og forvarnarfulltrúi Garðabæjar lagði fram samantekt af forvarnar- og kostnaðaráætlunum grunnskólanna fyrir veturinn 2018-2019.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1904130
05
19. júnísjóður uppgjör 2018 og úthlutun 2019
Skrifað var upp á ársreikning sjóðsins sem nú getur úthlutað 460.000,- kr. þetta árið. Auglýst verður eftir umsóknum í sjóðinn á næstu dögum.