Beint í efni

8. fundur

13.03.2019
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

8. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í íþróttamiðstöðinni Ásgarði

13.03.2019

Kl. 17:00 - 18:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Þorri Geir Rúnarsson - aðalmaður
  • Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
  • Guðrún Jónsdóttir - aðalmaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
  • Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi

Ritari

  • Kári Jónsson

Dagskrá

Málsnúmer 1902136

01

Hvatapeningar 2018 nýting

Yfirlit yfir nýtingu Hvatapeninga garðabæjar 2018

KJ kynnti nýtingu barna í Garðabæ á hvatapeningum 2018. Heildarnýting var 74%, mest í yngri árgöngum en minnst hjá þeim sem eldri eru.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1811205

02

Forvarnarmál í Garðabæ

GR rakti í hverju forvarnir í Garðabæ hafa verið fólgnar síðustu árin.

ÍTG kallar eftir áætlunum skóla og félagasamtaka í bænum ásamt upplýsingum um aðgerðir skólaárið 2018-2019 og kostnaðaráætlun vegna þeirra.

Málsnúmer 1902056

03

Tillaga um að gerð verði könnun meðal eldri borgara varðandi nýtingu á þeirri heilsurækt sem er í boði í Garðabæ.

KJ lagði fram tölur um þátttöku íbúa í Garðabæ 68 ára eða eldri á árinu 2018 í mismunandi heilsuræktar og frístundatilboðum. Vinna þarf mun meira í því að greina þátttöku þessa aldurshóps. Unnið verður áfram að því fyrir næsta fund.

Málsnúmer 1903158

04

KFG v 2. deildar keppni 2019

Verulega aukinn kostnaður er fyrir KFG af þátttöku í 2. deild karla í knattspyrnu sumarið 2019. Ferðir eru á Fáskrúðsfjörð, Fjarðarbyggð, Ísafjörð, Húsavík, Dalvík og Sauðarkrók.

Tekjumöguleikar eru litlir sem engir. Óskað er endurskoðunar á styrkupphæð 2019.

Samþykkt var að veita KFG styrk ða upphæð kr. 300.000,- vegna óvænts kostnaðarauka í ferðakostnaði þar sem liðið vann sér rétt til að keppa í 2. deild á komandi keppnistímabili.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1903098

05

Ásgeir Jón Guðbjartsson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ásgeir Jón Guðbjartsson kt. 1612684539 Snókerlandsliðið, World Snooker Seniors Tour 07.03.2019 í Leeds UK.

Ásgeir Jón Guðbjartsson kt. 1612684539 hlýtur ferðastyrk að upphæð kr. 20.000,- vegna ferðar með snókerlandsliði Íslands á World Snooker Seniors Tour 07.03.2019 í Leeds UK.

Önnur mál:
Staðan á framkvæmdum við fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri kynnt og farið yfir útlit og grunnmyndir af húsinu.