2. fundur
2. fundur
Öldungaráð
í Ísafold, Strikinu 3
15.05.2019
Kl. 08:30 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Anna Guðrún Hugadóttir - aðalmaður
- Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
- Ástbjörn Egilsson - aðalmaður
- Ólafur J Proppé - aðalmaður
- Guðlín Jóna Ómarsdóttir - aðalmaður
- Hildigunnur Árnadóttir - forstöðumaður
Ritari
- Hildigunnur Árnadóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1904298
01
Greiðsla styrks 2019
Ákvörðun bæjarráðs um greiðslu styrks til Félags eldri borgara í Garðabæ.
Greint frá samþykkt bæjarráðs varðandi greiðslu styrks að upphæð kr. 400.000 til félags eldri borgara í Garðabæ.
Málsnúmer 1902056
02
Tillaga um að gerð verði könnun meðal eldri borgara varðandi nýtingu á þeirri heilsurækt sem er í boði í Garðabæ.
Tillaga um að gerð verði könnun meðal eldri borgara varðandi nýtingu á þeirri heilsurækt sem er í boði í Garðabæ.
Í samantekt um fjölda þeirra eldri borgara sem eru að nýta sér heilsurækt á árinu 2018 þá kemur fram að tæplega 1500 (1489) skráningar eru fyrir hendi og að tæplega 2000 (1988) manns eru að nýta sér þá heilsurækt sem í boði er. Öldungaráð benti á mikilvægi þess að koma upp skráningarkerfi sem varpar nákvæmu ljósi á nýtinguna ekki síst til að draga fram fjölda þeirra sem ekki eru þátttakendur í heilsurækt fyrir eldri borgara.
Öldungaráð leggur áherslu á að gerð verði formleg spurningakönnun fyrir eldri borgara í Garðabæ þar sem spurt er um viðhorf til þeirrar heilsuræktar sem í boði er, hvort fólk er í annari heilsurækt en þeirri sem í boði er í Garðabæ og hvaða viðbætur fólk vilji sjá í framboðinu. Er forstöðumanni stuðningsþjónustu- og öldrunarála falið að framkvæma þessa könnun.
Málsnúmer 1710101
03
Stefna í málefnum eldri borgara - Aðgerðaráætlun
Aðgerðaráætlun
Almenn umræða um þau verkefni sem voru sett á áætlun árið 2018, staða þeirra og þau verkefni sem sett voru á oddinn 2019. Nýr forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu mun koma inn á næsta fund Öldungaráðs og gera grein fyrir þeim verkefnum sem komin eru af stað og aðgerðum árið 2019.
- Stefna í málefnum aldraðra, staða verkefna og næstu skref
- Samantekt á þátttöku eldri íbúa í frístundastarfi