Forvarnarvika í Garðabæ 2019
Ferill máls
Leikskólanefnd Garðabæjar
01
9. fundur
Forvarnarvika og framkvæmd hennar lögð fram til kynningar.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
02
12. fundur
Sagt frá fyrirhugaðri forvarnarviku í Garðabæ 9. - 16. október.
Öldungaráð
03
3. fundur
Vikuna 9-16 október verður forvarnarvika í Garðabæ. Áhersla verður lögð á að höfða til fleiri aldurshópa en verið hefur og að horft verði til allra íbúa Garðabæjar þegar forvarnir eru annars vegar. Óskað eftir umræðu um hvernig einkunarorð forvarnarvikunnar: Vinátta, félagsleg tengsl og samvera getur stuðlað að bættum lífsskilyrðum í hópi eldri borgara í Garðabæ.
Farið var yfir inntak forvarnarvikunnar og fagnar öldungaráð þeirri stefnu sem hefur verið mörkuð að höfða til allra íbúa Garðabæjar. Rætt um að eyrnamerkja vikuna 9-16. október forvörnum og voru hugmyndir um erindi og framsetningu settar fram. Fyrirhugaður er samráðsfundur undirbúningshóps vegna forvarnarviku og var ákvörðun tekin um að Ólafur S. Proppé og Stefanía Magnúsdóttir sætu þann fund fyrir hönd eldri borgara. Svanhildur Þengilsdóttir og fulltrúar félags eldri borgara munu fylgja málinu eftir.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
04
11. fundur
Forvarnarvika Garðabæjar er nú í undirbúningi og verið að leggja drög að dagskrá. ÍTG er nú með forvarnarmál á sinni könnu.
Forvarnarvika Garðabæjar verður haldin 9. til 16. október 2019. Lögð verður áhersla á vináttu, félagsleg tengsl, nánd og samveru út frá niðurstöðum úr rannsókn R&G sem kynnt var í vor. Mikilvægt er að virkja foreldrastarf í skólum og frjálsum félögum og höfða til fleiri aldurshópa s.s. eldri borgara.
Fylgiskjöl
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
05
11. fundur
Rætt um fyrirhugaða forvarnarviku, skólanefnd leggur áherslu á að hvert skólastig taki fyrir í þeirri viku viðgangsefni sem brennur á viðkomandi aldursstigi. Rætt um niðurstöður rannsóknar R&G á notkun ávanabindandi efna hjá nemendum í 8.-10. bekk. Skólanefnd vekur athygli á að góð og jákvæð samskipti foreldra/forráðamanna og barna og unglinga eru lykill að öflugu forvarnarstarfi. Skólanefnd skorar á forelda/forraðamenn að efla samskipti sín við börn og unglinga og vera þeim góð fyrirmynd. Þetta á ekki síst við núna þegar skólahaldi líkur og sumarið tekur við.