Beint í efni

11. fundur

11.06.2019
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

11. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu

11.06.2019

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
  • Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir - aðalmaður
  • Sófus Gústavsson - varamaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Katrín Friðriksdóttir - deildarstjóri skóladeildar
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Rúna Björk Þorsteinsdóttir - varamaður kennara

Ritari

  • Katrín Friðriksdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1811339

01

Þróunarsjóður grunnskóla 2019

Skólanefnd leggur til við bæjarráð að breytingar verði gerðar á 5. lið reglna um þróunarsjóð grunnskóla.

Málsnúmer 1904097

02

Ósk um breytingu á tímasetningum er varða skólabyrjun

Skólanefnd mun fylgja málinu frekar eftir í haust, felur skóladeild að birta niðurstöður könnunar og svara bréfritara.

Málsnúmer 1905140

03

Forvarnarvika í Garðabæ 2019



Rætt um fyrirhugaða forvarnarviku, skólanefnd leggur áherslu á að hvert skólastig taki fyrir í þeirri viku viðgangsefni sem brennur á viðkomandi aldursstigi. Rætt um niðurstöður rannsóknar R&G á notkun ávanabindandi efna hjá nemendum í 8.-10. bekk. Skólanefnd vekur athygli á að góð og jákvæð samskipti foreldra/forráðamanna og barna og unglinga eru lykill að öflugu forvarnarstarfi. Skólanefnd skorar á forelda/forraðamenn að efla samskipti sín við börn og unglinga og vera þeim góð fyrirmynd. Þetta á ekki síst við núna þegar skólahaldi líkur og sumarið tekur við.

Málsnúmer 1906085

04

Störf skólanefndar 2018-2019 samantekt

Samantekt á störfum nefndarinnar skólaárið 2018-2019 lögð fram

Málsnúmer 1906084

05

Áherslur Skólanefndar grunnskóla 2019-2020

Áhersla á UT málin, fá kennsluráðgjafa, fulltúra heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Ungmennaráð í heimsókn á fund nefndarinnar.