Beint í efni

4. fundur

28.11.2022
Öldungaráð

4. fundur

Öldungaráð

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

28.11.2022

Kl. 08:00 - 09:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
  • Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
  • Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
  • Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Elín Þuríður Þorsteinsdóttir
  • Þóra Gunnarsdóttir - forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu

Ritari

  • Svanhildur Þengilsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2211434

01

Kynning fyrir öldungaráð

Kynning á félagsstarfi eldri borgara í Jónshúsi þar sem farið verður yfir þá virkni sem verið er að bjóða upp á og hvað er framundan í starfinu. Upplýst er um hvernig gengur að nýta framlagt fjármagn frá Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu starfinu til framdráttar.

Mál nr. 2211434, kynning á félagstarfi eldri borgara í Jónshúsi. Elín Þuríður Þorsteinsdóttir kynnir starfið og svarar fyrirspurnum fundarmanna. Fram kemur rík áhersla hjá fundarmönnun að fylgja vel eftir endurbótum á húsnæði Jónshúss.

Málsnúmer 2211437

02

Heildarendurskoðun á framtíð þjónustu við eldra fólk á Íslandi

Viljayfirlýsing um heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk var undirrituð 21.06.2022. Þar sem kveðið er á um aukið samstarf og samvinnu varðandi málefni eldra fólks með það markmið að tryggja samhæfða þjónustu við hæfi á réttu þjónustustigi og á réttum tíma. Á það bæði við um stuðningsþjónustu sveitarfélaga og heilbrigðisþjónustu ríkisins. Markmiðið er að tryggja samhæfða þjónustu. Verkefnastjórn hefur það hlutverk að leiða vinnu við heildarendurskoðun þjónustunnar og útfæra tímasett markmið í aðgerðaáætlun til fjögurra ára og í framhaldi vinna að innleiðingu og framkvæmd aðgerðaáætlunarinnar. Skal verkefnasjórn hafa víðtækt samráð við sveitarfélög, samtök eldri borgara, þjónustuaðila og aðra hagaðila. Í september sl. var haldin vinnustofa um framtíð þjónustu við eldra fólk og sem er hluti af vinnu heildarendurskoðunarinnar. Boðað hefur verið til fundar 5. desember nk. með hagaðilum til að kynna drög að aðgerðaáætlun til fjögurra ára, sem lögð verður fram á Alþingi vorið 2023.

Mál nr. 2211437,lagt fram til kynningar og umræðu. Öldungaráð telur mikilvægt að fylgja málefninu eftir.

Málsnúmer 1710101

03

Stefna í málefnum eldri borgara - Aðgerðaáætlun

Fyrir liggur aðgerðaáætlun tengd stefnu í málefnum eldri borgara í Garðabæ. Farið er yfir þá áætlun og næstu skref í framkvæmd.

Mál nr. 1710101, lagt fram til umræðu.