Beint í efni

Heildarendurskoðun á framtíð þjónustu við eldra fólk á Íslandi

Málsnúmer 2211437

Ferill máls

Öldungaráð

01

4. fundur

Viljayfirlýsing um heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk var undirrituð 21.06.2022. Þar sem kveðið er á um aukið samstarf og samvinnu varðandi málefni eldra fólks með það markmið að tryggja samhæfða þjónustu við hæfi á réttu þjónustustigi og á réttum tíma. Á það bæði við um stuðningsþjónustu sveitarfélaga og heilbrigðisþjónustu ríkisins. Markmiðið er að tryggja samhæfða þjónustu. Verkefnastjórn hefur það hlutverk að leiða vinnu við heildarendurskoðun þjónustunnar og útfæra tímasett markmið í aðgerðaáætlun til fjögurra ára og í framhaldi vinna að innleiðingu og framkvæmd aðgerðaáætlunarinnar. Skal verkefnasjórn hafa víðtækt samráð við sveitarfélög, samtök eldri borgara, þjónustuaðila og aðra hagaðila. Í september sl. var haldin vinnustofa um framtíð þjónustu við eldra fólk og sem er hluti af vinnu heildarendurskoðunarinnar. Boðað hefur verið til fundar 5. desember nk. með hagaðilum til að kynna drög að aðgerðaáætlun til fjögurra ára, sem lögð verður fram á Alþingi vorið 2023.

Mál nr. 2211437,lagt fram til kynningar og umræðu. Öldungaráð telur mikilvægt að fylgja málefninu eftir.