Beint í efni

44.(2097). fundur

21.11.2023
Bæjarráð Garðabæjar

44.(2097). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

21.11.2023

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2304477

01

Tilboð í byggingarrétt lóða á Hnoðraholti.

Lögð voru fram 351 óopnuð umslög með tilboðum í byggingarrétt lóða á Hnoðraholti, sbr. tilkynningu um sölu á byggingarrétti lóða á Hnoðraholti sem birt var á vef Garðabæjar 3. nóvember 2023.

Tilboðin komu frá söluaðilum, þ.e. Torg - fasteignasölu, Garðatorg eignamiðlun, Fasteignamarkaðinum og Fasteignasölunni Miklaborg.


Öll tilboð voru móttekin fyrir kl. 12:00, föstudaginn 17. nóvember 2023

Umslögin voru opnuð og tilboðin flokkuð eftir tegundum lóða.

Tilboð í fjölbýlishúsalóðir 103.

Tilboð í par/raðhúsalóðir 215.

Tilboð í einbýlishúsalóðir 491.

Tilboðin verða skráð, flokkuð nánar og tekin til afgreiðslu á fundi bæjarráðs þriðjudaginn 28. nóvember 2023.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2307150

02

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2024 (2024-2027).

Sviðsstjórar fóru yfir helstu þætti í greinargerð með frumvarpi að fjárhagsáætlun og gerðu nánari grein fyrir einstaka rekstrareiningum.

Farið var yfir yfirlit yfir breytingar á gjaldskrám og lagt fram yfirlit yfir mál sem hefur verið vísað til skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Málsnúmer 2307120

03

Dýjagata 18 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir að afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita GR verk 210 ehf., kt. 410621-1770, að byggja einbýlishús á lóðinni við Dýjagötu 18.

Málsnúmer 2303468

04

Krókamýri 18 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Davíð G. Waage, kt. 280275-3959, leyfi til að stækka og breyta ytra byrði núverandi húss á lóðinni við Krókamýri 18.

Málsnúmer 2309256

05

Vörðugata 2 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita J.E Skjanna byggingarverktaka ehf., kt. 651108-0550, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 30 íbúum á lóðinni við Vörðugötu 2.

Málsnúmer 2311283

06

Bréf Jafnréttisstofu varðandi ábendingu til sveitarfélaga, dags. 10.11.23.

Í bréfinu er ábending til sveitarfélaga um mikilvægi þess að gæta að kynja- og jafnréttissjónarmiðum við stefnumótun og ákvörðunartöku í breytingum á fyrirkomulagi leikskóla.

Bæjarráð vísar bréfinu til kynningar í leikskólanefnd og velferðarráði.

Málsnúmer 2311300

07

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Lionsklúbbs Álftanes um tímabundið áfengisleyfi í skötuveislu 23. desember 2023.

Lögð fram umsókn Lionsklúbbs Álftaness um tímabundið áfengisleyfi í íþróttamiðstöðinni á Álftanesi í tilefni af skötuveislu á Þorláksmessu 23. desember 2023.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 2311343

08

Bréf Lionsklúbbs Álftaness varðandi húsnæði fyrir skötuveislu á Þorláksmessu, dags. 15.11.23

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.

Málsnúmer 2311344

09

Bréf Lionsklúbbs Álftaness varðandi húsnæði fyrir þorrablót, dags. 15.11.23.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.

Málsnúmer 2311290

10

Tilkynning frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu varðandi fyrstu grænbók í málefnum innflytjenda og flóttafólks, dags. 15.11.23.

Í tilkynningunni kemur fram að birt hefur verið í samráðsgátt stjórnvalda grænbók um málefni innflytjenda og flóttafólks. Í henni er mat lagt á stöðuna í málefnum innflytjenda og flóttafólks og áskoranir og tækifæri greind til framtíðar.

Frestur til að senda inn umsagnir er til og með 8. desember 2023.

Málsnúmer 2311345

11

Tilkynning frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu varðandi fyrstu landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks, dags. 10.11.23.

Í tilkynningunni kemur fram að birt hefur verið í samráðsgátt stjórnvalda fyrsta landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks. Áætlunin felur í sér 57 aðgerðir til að koma í framkvæmd ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Landsáætlunin er liður í innleiðingu og lögfestingu samningsins hér á landi.

Frestur til að senda inn umsagnir er til og með 23. nóvember 2023.

Málsnúmer 2311356

12

Erindi frá innviðaráðuneytinu varðandi lögbundnar nefndir innan sveitarfélaga, dags. 17.11.23.

Erindið varðar fyrirspurn frá Alþingi um lögbundnar nefndir í sveitarfélögum.

Bæjarstjóra falið að hlutast til um að svara erindinu.

Málsnúmer 2311355

13

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, 478. mál, dags. 16.11.23.

Lagt fram.

Málsnúmer 2311337

14

Fundargerðir aðalfundar SSH og ársfunda byggðasamlaganna, dags. 10.11.23.

Lagðar fram.

Málsnúmer 2304082

15

Minnisblað Hrafnistu varðandi fjölgun rýma í dagdvöl Ísafoldar, dags. 19.10.23.

Í minnisblaðinu er lýsing á framkvæmdum og búnaðarkaupum vegna stækkunar dagdvalar Ísafoldar.

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu bæjarstjóra.