Beint í efni

2. fundur

27.04.2026
Öldungaráð

2. fundur

Öldungaráð

í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi

27.04.2026

Kl. 08:00 - 09:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
  • Eysteinn Haraldsson - aðalmaður
  • Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
  • Anna Ragnheiður Möller - aðalmaður
  • Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
  • Margrét Björnsdóttir - aðalmaður
  • Sæbjörg Einarsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Þóra Gunnarsdóttir - forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu
  • Sólveig Valgeirsdóttir - forstöðumaður

Ritari

  • Svanhildur Þengilsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2311400

01

Hjólreiðastefna Garðabæjar

Hjólreiðastefna Garðabæjar sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar 19. mars 2026 lögð fram til kynningar.

Hjólreiðastefna Garðabæjar sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar 19. mars 2026, lögð fram til kynningar. Öldungaráð lýsir yfir almennri ánægju með stefnuna sem er vel unnin og framsækin.

Málsnúmer 2502547

02

Íbúaþing eldra fólks 2026

Niðustöður íbúaþings sem haldið var þann 11. mars lagðar fram til kynningar og umræðu.

Niðurstöður íbúaþings eldra fólks, frá 11. mars lagðar fram til kynningar og umræðu. Almenn ánægja var með umgjörð, framkvæmd og skipulag fundarins og þá vinnu sem lagt var upp með þar. Unnið var í borðavinnu þar sem meðal annars var rætt um búsetu og umhverfi, heilsu og vellíðan, stuðning og þjónustu sveitarfélagsins auk félagslegrar virkni og þátttöku í samfélaginu. Í niðurstöðum íbúaþings liggja fyrir margar ábendingar og tillögur um þætti sem eldra fólk vill leggja áherslu á til framtíðar. Horft verður til þessara lykiláherslna og tillagna við mótun og endurskoðun á stefnu og aðgerðaráætlun í málefnum eldra fólks til næstu ára. Öldungaráð leggur áherslu á að niðurstöður íbúaþings verði kynntar sem allra fyrst.

Málsnúmer 2604385

03

Kynning á starfsemi félagsmiðstöðva eldra fólks í Garðabæ

Kynning á starfsemi félagsmiðstöðva eldra fólks í Garðabæ.

Sólveig Valgeirsdóttir, forstöðumaður félagsmiðstöðva eldra fólks í Garðabæ kynnti starfsemi sem framundan er í félagsmiðstöðvum eldra fólks í Garðabæ.

Málsnúmer 2603502

04

Samþætting heilbrigðis- og félagsþjónustu í Garðabæ

Minnisblað um samþætta heilbrigðis- og félagsþjónustu í Garðabæ er lagt fram til kynningar og umræðu.

Farið yfir minnisblað tengt samþættri heimahjúkrun og félagslegri þjónustu. Öldungaráð styður það eindregið að farið verði í að skoða grundvöll þess að samþætta heilbrigðis- og félagsþjónustu í Garðabæ.