5. fundur
5. fundur
Velferðarráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
08.05.2026
Kl. 08:15 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- María Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Snædís Björnsdóttir - lögfræðingur
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
01
Frístundaþjónusta fatlaðra barna og ungmenna
Upplýsingar um stöðu framkvæmda vegna frístundaþjónustu fatlaðra ungmenna lagðar fram til kynningar.
Upplýsingar um stöðu framkvæmda vegna frístundaþjónustu fatlaðra ungmenna lagðar fram til umræðu. Skrifað hefur verið undir verksamning vegna framkvæmdanna, en fram undan eru framkvæmdir á rýminu. Hönnuður rýmisins eru Nordic arkitektar og framkvæmdir og frágangur innanhúss er í höndum Aðalvíkur ehf.
02
Samþætting heilbrigðis- og félagsþjónustu í Garðabæ
Sviðsstjóri velferðarsviðs fer yfir minnisblað tengt samþættri heimahjúkrun og félagslegri þjónustu.
Velferðarráð styður það eindregið að haldið verði áfram að skoða grundvöll þess að samþætta heilbrigðis- og félagsþjónustu í Garðabæ.
03
Aðgerðaáætlun Garðabæjar í jafnréttismálum 2024-2026
Staða aðgerða samkvæmt aðgerðaáætlun Garðabæjar í jafnréttismálum 2024-2026.
Farið yfir stöðu aðgerða samkvæmt aðgerðaáætlun Garðabæjar í jafnréttismálum 2024-2026.
04
Tölulegar upplýsingar fjárhagsaðstoð
Tölfræði vegna fjárhagsaðstoðar janúar til apríl 2026 lögð fram til umræðu og kynningar.
Tölfræði vegna fjárhagsaðstoðar janúar til apríl 2026 lögð fram til umræðu og kynningar ásamt tölum um atvinnuleysi.
05
Íbúaþing eldra fólks 2026
Niðurstöður íbúaþings eldra fólks, frá 11. mars lagðar fram til kynningar og umræðu.
Niðurstöður íbúaþings eldra fólks, frá 11. mars lagðar fram til kynningar og umræðu. Almenn ánægja var með umgjörð, framkvæmd og skipulag fundarins og þá vinnu sem lagt var upp með þar.
Í niðurstöðum íbúaþings liggja fyrir margar ábendingar og tillögur um þætti sem eldra fólk vill leggja áherslu á til framtíðar. Horft verður til þeirra ábendinga og tillagna við mótun og endurskoðun á stefnu og aðgerðaráætlun í málefnum eldra fólks til næstu ára.
06
Umsókn um félagslega íbúð
Beiðni um endurskoðun synjunar umsóknar um félagslegt leiguhúsnæði.
Velferðarráð staðfestir niðurstöðu velferðarsviðs. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
07
Umsókn um fjárhagsaðstoð
Beiðni um endurskoðun synjunar um fjárhagsaðstoð.
Velferðarráð staðfestir niðurstöðu velferðarsviðs. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.