40. fundur
40. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
11.06.2025
Kl. 08:00 - 09:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
- Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Arnar Hólm Einarsson - aðalmaður
- Lilja Lind Pálsdóttir - varamaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Kári Jónsson
Formaður óskaði í upphafi fundar eftir að setja inn nýjan dagskrárlið frá því sem var boðað í auglýstri dagskrá og var það samþykkt. sá liður er fyrstur á dagskrá.
Dagskrá
Málsnúmer 2506233
01
Stjarnan Íslandsmeistari í körfubolta karla 2025
Karlalið Stjörnunnar í körfubolta varð Íslandsmeistari í oddaleik við Tindastól á Sauðarkróki í vor.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar óskar körfuknattleiksdeild Stjörnunnar innilega til hamingju með sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í körfubolta í 65 ára sögu félagsins. Þetta er sögulegur áfangi og viðurkenning á frábæru starfi leikmanna, þjálfara, starfsfólks og stuðningsmanna.
Af því tilefni hefur bæjarstjórn Garðabæjar ákveðið að bjóða Íslandsmeisturunum til hátíðarmóttöku þar sem þeim verður formlega veitt viðurkenning og styrkur frá bænum fyrir þetta merka afrek.
Málsnúmer 2501265
02
Hönnun - Útboð - Gervigrasvellir 2025 - Stekkjarflöt
Til kynningar er áformað útboð á viðhaldi og stækkun gervigrasvallarins á Stjörnuvelli næst Stekkjaflöt.
Samþykkt hefur verið í bæjarráði að bjóða út stækkun Stekkjarflatarvallar og endurnýjun hitaveitu. Verkefnið snýst um að breikka æfingavöll Stjörnunnar sem liggur að Stekkjarflöt um 8 metra úr 60 m breiðum velli í 68 m. Einnig verður farið í að endurnýja lýsingu á vellinum á þremur möstrum. Vegna stækkunar vallarins er þörf á tilfærslu á göngustígnum sem liggur meðfram vellinum en einnig er brýn þörf á því að endurnýja hitaveitulögn sem liggur undir núverandi stíg. Munu því Veitur koma að verkefninu með Garðabæ.
Málsnúmer 2503150
03
Stefna í málefnum eldri borgara - Aðgerðaráætlun 2025 -2026
Stefna í málefnum eldri borgara í Garðabæ - Aðgerðaráætlun 2025 - 2026. Samþykkt á fundi bæjarstjórnar 15.05 2025
Samþykkt í bæjarstjórn 15. maí sl. lögð hér fram til kynningar.
Sérstök athygli vakin á 4. kafla sem fjallar um félagslega þátttöku og 5. kafla sem fjallar um forvarnir og heilsueflingu. Einnig má nefna 8. kafla sem fjallar um miðlun þekkingar, sem tengist inn í félagsstarf í félagsmiðstöðvum, leik- og grunnskólum. Íþrótta- og tómstundaráð áréttar mikilvægi þess að áfram sé unnið markvisst að því að efla félagslega virkni og þátttöku eldri borgara í fjölbreyttu félagsstarfi.
Málsnúmer 2506157
04
Starfsskýrslur félagsmiðstöðva
Kynning á starfsskýrslum félagsmiðstöðvanna veturinn 2024-2025
Garðalundur í Garðaskóla
Elítan í Álftanesskóla
Klakinn í Sjálandsskóla ásamt miðdeildunum í Flataskóla og Hofsstaðaskóla.
Urri í Urriðaholtsskóla.
Starfsskýrlur félagsmiðstöðva Garðabæjar veturinn 2024/2025 teknar fyrir. Um var að ræða starfsskýrslur eftirfarandi félagsmiðstöðva:
Garðalundur í Garðaskóla - unglingastig
Elítan í Álftanesskóla - miðdeild og unglingastig
Klakinn í Sjálandsskóla - miðdeild og unglingastig
Dropinn í Flataskóla - miðdeild
Fjaran í Hofsstaðaskóla - miðdeild
Urri í Urriðaholtsskóla - miðdeild og unglingastig
Garðahraun - sértæk félagsmiðstöð fyrir börn og unglinga með þörf fyrir aukinn stuðning.
Einnig var upplýst að Ungmennahús verður opnað í haust í samráði við Ungmennaráð Garðabæjar. Verkefnastjóri þess verður Ragnhildur Jónasdóttir.
Íþrótta- og tómstundaráð vill hrósa félagsmiðstöðvunum og starfsfólki þeirra fyrir öflugt, fjölbreytt og faglegt starf á liðnum vetri. Félagsmiðstöðvarnar munu vera opnar í sumar líkt og kynnt hefur verið á heimasíðu bæjarins.
Málsnúmer 2306257
05
Geðrækt ungmenna vinnuhópur SSH
Vinnuhópur á vegum SSH skilaði af sér skýrslu um viðmið við forvarnir og geðrækt ungmenna. Aðgerðaráætlunin er hluti af Sóknaráætlun SSH sem kynnt var á morgunfundi með nefndum og ráðum sveitarfélaganna 16. maí sl. Íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúi Garðabæjar hefur setið í þessum vinnuhópi frá árinu 2022.
Vinnuhópur á vegum SSH hefur skilað af sér skýrslu um viðmið um forvarnir og geðrækt ungmenna. Aðgerðaráætlunin er hluti af Sóknaráætlun SSH og var kynnt á morgunfundi með nefndum og ráðum sveitarfélaganna þann 16. maí sl. Íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúi Garðabæjar hefur átt sæti í vinnuhópnum frá árinu 2022.
Markmið vinnuhópsins var að móta samræmd viðmið og áætlanir sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um forvarnir og geðrækt ungmenna, byggt á þarfagreiningu og könnun á afstöðu hópsins sjálfs. Tilgangurinn er að tryggja að öll ungmenni á aldrinum 16?25 ára hafi jafnan aðgang að frístundastarfi, ráðgjöf, stuðningi og forvarnarstarfi, óháð búsetu.
Á fundinum var farið yfir helstu niðurstöður vinnuhópsins og rætt sérstaklega hvernig þær snúa að Garðabæ. Ráðið fjallaði um þá starfsemi sem er þegar til staðar í sveitarfélaginu og hvaða tækifæri kunna að vera til frekari þróunar í forvörnum og geðrækt ungmenna.
Málsnúmer 2506180
06
Forvarnavika Garðabæjar 2025
Forvarnavika Garðabæjar 2025 verður haldin 29. október til 5. nóvember. Dagskrá liggur ekki fyrir en unnið verður að henni í byrjun skólaársins í haust.
Forvarnavika Garðabæjar 2025 verður haldin 29. október til 5. nóvember. Dagskrá liggur ekki fyrir en unnið verður að henni í byrjun skólaársins í haust.
Umræður fóru fram um hvernig megi bæta, styrkja og stækka forvarnarvikuna með það fyrir augum að hún vekji enn meiri athygli Garðbæinga. Rætt var um mikilvægi þess að virkja einstaklinga til þátttöku í hreyfingu og félagsstarfi.
Málsnúmer 2505421
07
NM í Ólympískum lyftingum H2025 í Miðgarði
Lyftingasamband Íslands (LSÍ) óskar eftir samstarfi við Garðabæ um að halda NM í Ólympískum lyftingum í Miðgarði 14.-16. nóvember 2025. LSÍ er í samstarfi við Lyftingadeild Stjörnunnar með mótshaldið. Óskað er eftir að fá aðgang að Miðgarði endurgjaldslaust.
Lyftingasamband Íslands (LSÍ) óskar eftir samstarfi við Garðabæ um að halda NM í Ólympískum lyftingum í Miðgarði 14.-16. nóvember 2025. LSÍ er í samstarfi við Lyftingadeild Stjörnunnar með mótshaldið. Óskað er eftir að fá aðgang að Miðgarði endurgjaldslaust.
ÍTG lýsir sig samþykkt þessari ósk og beinir því til mótshaldara að það trufli ekki aðra starfsemi í húsinu en í þeim sölum sem nýttir verða til keppni og upphitunar.
Málsnúmer 2506181
08
Umsókn um styrk við styrktamótaröð í frisbígolfi
Umsókn um styrk vegna mótaraðar í frisbígolfi. Þessi mótaröð er sérstaklega sett saman til að styrkja fjóra unga drengi fjárhagslega á aldrinum 13-16 ára. Þeir fengu allir pláss á virtu og stóru móti á Álandseyjum í sumar.
ÍTG óskar eftir frekari upplýsingum áður en hægt er að taka málið fyrir efnislega.
Málsnúmer 2505494
09
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 20.000 til Kolbrúnar Evu Hólmarsdóttur vegna NM unglinga í áhaldafimleikum í Álaborg, Danmörku 5. til 9. júní 2025.
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Kolbrúnar Evu Hólmarsdóttur vegna NM unglinga í áhaldafimleikum í Álaborg, Danmörku 5. til 9. júní 2025.
Málsnúmer 2505380
10
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 20.000 til Matthíasar Dags Þorsteinssonar vegna NM U17 í handbolta í Færeyjum 6. júní 2025.
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Matthíasar Dags Þorsteinssonar vegna NM U17 í handbolta í Færeyjum 6. júní 2025.
Málsnúmer 2505534
11
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrk til Sigurrósar Ástu Þórisdóttur vegna NM unglinga í áhaldafimleikum í Árósum, Danmörku, 5. júní 2025
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Sigurrósar Ástu Þórisdóttur vegna NM unglinga í áhaldafimleikum í Árósum, Danmörku, 5. júní 2025