Beint í efni

Stjarnan Íslandsmeistari í körfubolta karla 2025

Málsnúmer 2506233

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

40. fundur

Karlalið Stjörnunnar í körfubolta varð Íslandsmeistari í oddaleik við Tindastól á Sauðarkróki í vor.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar óskar körfuknattleiksdeild Stjörnunnar innilega til hamingju með sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í körfubolta í 65 ára sögu félagsins. Þetta er sögulegur áfangi og viðurkenning á frábæru starfi leikmanna, þjálfara, starfsfólks og stuðningsmanna.
Af því tilefni hefur bæjarstjórn Garðabæjar ákveðið að bjóða Íslandsmeisturunum til hátíðarmóttöku þar sem þeim verður formlega veitt viðurkenning og styrkur frá bænum fyrir þetta merka afrek.