Hönnun - Útboð - Gervigrasvellir 2025 - Stekkjarflöt
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
40. fundur
Til kynningar er áformað útboð á viðhaldi og stækkun gervigrasvallarins á Stjörnuvelli næst Stekkjaflöt.
Samþykkt hefur verið í bæjarráði að bjóða út stækkun Stekkjarflatarvallar og endurnýjun hitaveitu. Verkefnið snýst um að breikka æfingavöll Stjörnunnar sem liggur að Stekkjarflöt um 8 metra úr 60 m breiðum velli í 68 m. Einnig verður farið í að endurnýja lýsingu á vellinum á þremur möstrum. Vegna stækkunar vallarins er þörf á tilfærslu á göngustígnum sem liggur meðfram vellinum en einnig er brýn þörf á því að endurnýja hitaveitulögn sem liggur undir núverandi stíg. Munu því Veitur koma að verkefninu með Garðabæ.
Bæjarráð Garðabæjar
02
22. (2170). fundur
Bæjarráð samþykkir að boðin verði út stækkun Stekkjaflatarvallar og endurnýjun hitaveitu.