Geðrækt ungmenna vinnuhópur SSH
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
40. fundur
Vinnuhópur á vegum SSH skilaði af sér skýrslu um viðmið við forvarnir og geðrækt ungmenna. Aðgerðaráætlunin er hluti af Sóknaráætlun SSH sem kynnt var á morgunfundi með nefndum og ráðum sveitarfélaganna 16. maí sl. Íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúi Garðabæjar hefur setið í þessum vinnuhópi frá árinu 2022.
Vinnuhópur á vegum SSH hefur skilað af sér skýrslu um viðmið um forvarnir og geðrækt ungmenna. Aðgerðaráætlunin er hluti af Sóknaráætlun SSH og var kynnt á morgunfundi með nefndum og ráðum sveitarfélaganna þann 16. maí sl. Íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúi Garðabæjar hefur átt sæti í vinnuhópnum frá árinu 2022.
Markmið vinnuhópsins var að móta samræmd viðmið og áætlanir sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um forvarnir og geðrækt ungmenna, byggt á þarfagreiningu og könnun á afstöðu hópsins sjálfs. Tilgangurinn er að tryggja að öll ungmenni á aldrinum 16?25 ára hafi jafnan aðgang að frístundastarfi, ráðgjöf, stuðningi og forvarnarstarfi, óháð búsetu.
Á fundinum var farið yfir helstu niðurstöður vinnuhópsins og rætt sérstaklega hvernig þær snúa að Garðabæ. Ráðið fjallaði um þá starfsemi sem er þegar til staðar í sveitarfélaginu og hvaða tækifæri kunna að vera til frekari þróunar í forvörnum og geðrækt ungmenna.