Beint í efni

Stekkholt 8 - Deiliskipulag

Málsnúmer 2510325

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

18. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem nær til lóðarinnar Stekkholt 8. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan er því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Hnoðraholts norður.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

15. (967). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar frá fundi 22. október 2025 varðandi breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir því að svalir á efri hæð nái 1 metra út fyrir byggingarreit að norðanverðu og að sunnanverðu. Samkvæmt deiliskipulagi er heimilt að svalir nái 60 cm út fyrir byggingarreit. Skipulagsnefnd mat tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2.mgr. 43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísaði henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum lóðanna Stekkholt 6, 10, 19 og 21 sem og Vorbraut 11 og 13.

Bæjarráð Garðabæjar

03

39. (2187). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar frá fundi 22. október 2025 varðandi breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir því að svalir á efri hæð nái 1 metra út fyrir byggingarreit að norðanverðu og að sunnanverðu. Samkvæmt deiliskipulagi er heimilt að svalir nái 60 cm út fyrir byggingarreit.
Skipulagsnefnd mat tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2.mgr. 43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísaði henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum lóðanna Stekkholt 6, 10, 19 og 21 sem og Vorbraut 11 og 13.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

15. fundur

Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir því að svalir á efri hæð nái 1 metra út fyrir byggingarreit að norðanverðu og að sunnanverðu. Samkvæmt deiliskipulagi er heimilt að svalir nái 60 cm út fyrir byggingarreit.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum lóðanna Stekkholt 6, 10, 19 og 21 sem og Vorbraut 11 og 13.