Beint í efni

Langafit 26 - Breyting á deiliskipulagi

Málsnúmer 2509260

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

14. fundur

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

13. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra. Breytingin gerir ráð fyrir byggingarreit fyrir bílskúr í samræmi við veitt byggingarleyfi frá 1981.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum við Löngufit 22 og 24 og Hraunholtsveg 2. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

13. fundur

Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra sem gerir ráð fyrir byggingarreit fyrir bílageymslu norðan við íbúðarhúsið sem stendur á lóðinni. Byggingarreitur er í samræmi við samþykkt byggingarleyfi fyrir bílageymslu árið 1981. Bílgeymslan hefur ekki verið byggð samkvæmt samþykktum teikningum. Í gildandi deiliskipulagi Hraunsholts eystra er ekki gert ráð fyrir byggingarreit á lóðinni fyrir bílageymslu.
Skipulagsnefnd vísar umsókninni til umsagnar hjá deiliskipulagshöfundi.