Tónlistarskóli - Kirkjulundur - dsk br.
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
17. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Miðbæjar sem nær til lóðar tónlistarskóla við Kirkjulund að lokinni auglýsingu. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu deiliskipulags Miðbæjar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
13. (965). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 18. september 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Miðbæjar sem nær til lóðar tónlistarskóla við Kirkjulund. Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vekja skal athygli lóðarhafa við Kirkjulund og Hofslund á auglýsingunni með dreifibréfi.
Bæjarráð Garðabæjar
05
34. (2182). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 18. september 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Miðbæjar sem nær til lóðar tónlistarskóla við Kirkjulund.
Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vekja skal athygli lóðarhafa við Kirkjulund og Hofslund á auglýsingunni með dreifibréfi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
13. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Miðbæjar sem nær til lóðar tónlistarskóla við Kirkjulund.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vekja skal athygli lóðarhafa við Kirkjulund og Hofslund á auglýsingunni með dreifibréfi.