Beint í efni

Gerðakot 4 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Málsnúmer 2505199

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

11. fundur

Lögð fram fyrirspurn um útfærslu á viðbyggingu við einbýlishúsið að Gerðakoti nr.4. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
Skipulagsnefnd telur að til greina komi að vísa byggingarleyfisumsókn fyrir viðbyggingunni til grenndarkynningar en þá þarf að liggja fyrir rétt afmörkun lóðar og stærð þannig að unnt sé að átta sig á nýtingarhlutfalli lóðar og húss með viðbyggingu. Gera þarf mæliblað lóðarinnar og lagfæra skráningu hennar en hún er í ósamræmi við raunstærð. Lóðin er 1000 m2 samkvæmt fasteignaskráningu en mælist a.m.k. 1.400 m2 á kortavef.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

9. fundur

Lögð fram fyrirspurn um útfærslu breytingar á lóðinni Gerðakot 4 á Álftanesi. Fyrirspurn vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.