Afgreiðsla skipulagsnefndar - Urriðaholt Austurhluti, deiliskipulagsbreyting, Flóttamannavegur
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
23. (2171). fundur
Bæjarráð staðfestir, skv. heimild í 5.mgr. 35.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 19. júní 2025 vegna tillögu að breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta, ásamt tillögum að svörum og viðbrögðum við þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingartíma.
Í deiliskipulaginu mun koma fram það sjónarmið Garðabæjar að æskilegt sé að hámarkshraði á Flóttamannavegi á þessum kafla sé ekki hærri en 50 km/klst í ljósi þess að hann liggur um þéttbýli með byggð á aðra hönd og útivistarsvæði/golfvöll á hina. Miðað við þær aðstæður er ekki ráðlagt að vera með hærri umferðarhraða en 50 km/klst.
Mörk fólkvanga verða einnig sett inn á deiliskipulagsuppdrátt.
Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkti deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
10. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta, ásamt tillögum að svörum og viðbrögðum við þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingartíma. Hrafnhildur Brynjólfsdóttir skipulagsfræðingur hjá Eflu gerði grein fyrir tillögunni og athugasemdum og umsögnum.
Í deiliskipulaginu mun koma fram það sjónarmið Garðabæjar að æskilegt sé að hámarkshraði á Flóttamannavegi á þessum kafla sé ekki hærri en 50 km/klst í ljósi þess að hann liggurum þéttbýli með byggð á aðra hönd og útivistarsvæði/golfvöll á hina. Miðað við þær aðstæður er ekki ráðlagt að vera með hærri umferðarhraða en 50 km/klst.
Mörk fólkvanga verða einnig sett inn á deiliskipulagsuppdrátt.
Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkir deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
9. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta að lokinni auglýsingu, ásamt þeim athugasemdum og ábendingum sem borist hafa.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
3. (955). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 13. febrúar 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta sem gerir ráð fyrir breytingum á útfærslu Flóttamannavegar og gatnamóta við Urriðaholtsstræti, Holtsveg og aðkomuveg að golfvallarsvæði. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Forkynningar- og lýsingarstig fellt niður þar sem að allar meginforsendur eru til staðar í aðalskipulagi sbr. 2. og 3. mgr. 40. gr. sömu laga.
Bæjarráð Garðabæjar
06
7. (2155). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 13. febrúar 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Austurhluta sem gerir ráð fyrir breytingum á útfærslu Flóttamannavegar og gatnamóta við Urriðaholtsstræti, Holtsveg og aðkomuveg að golfvallarsvæði.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forkynningar- og lýsingarstig fellt niður þar sem að allar meginforsendur eru til staðar í aðalskipulagi sbr. 2. og 3. mgr. 40. gr. sömu laga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
2. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Austurhluta sem gerir ráð fyrir breytingum á útfærslu Flóttamannavegar og gatnamóta við Urriðaholtsstræti, Holtsveg og aðkomuveg að golfvallarsvæði.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 41. gr.skipulagslaga nr. 123/2010.
Forkynningar- og lýsingarstig fellt niður þar sem að allar meginforsendur eru til staðar í aðalskipulagi sbr. 2. og 3. mgr. 40. gr.sömu laga.