Afgreiðsla skipulagsnefndar - Víðiholt - Veggir, girðingar og smáhýsi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
29. (2177). fundur
Bæjarráð staðfestir, skv. heimild í 5.mgr. 35.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 14. ágúst 2025 varðandi tillögu að óverulegri breytingu deiliskipulags Víðiholts sem nær til veggja, girðinga og smáhýsa að lokinni grenndarkynningu.
Engar athugasemdir bárust og skoðast tillagan því samþykkt í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
11. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Víðiholts sem nær til veggja, girðinga og smáhýsa að lokinni grenndarkynningu.
Engar athugasemdir bárust og skoðast tillagan því samþykkt í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
03
23. (2171). fundur
Bæjarráð staðfestir, skv. heimild í 5.mgr. 35.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 19. júní 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Víðiholts sem nær til veggja, girðinga og smáhýsa.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
- Heimilt er að setja skjólvegg allt að 1,8 m háan á milli lóða eða út frá horni endahúsa, allt að 4,4 m frá byggingarreit.
- Heimilt er að skerma lóðina af með gróðri eða girðingu allt að 1,5 m hárri. Ef girðing á lóðarmörkum er höfð hærri en 1,2 m skal koma fyrir uppbrotum í vegg með gróðurhólfum.
- Heimilt er að setja upp eitt smáhýsi á hverja rað- og parhúsalóð, allt að 5 m² að stærð. Að öðru leiti gilda ákvæði byggingarreglugerðar um fjarlægð smáhýsa frá lóðarmörkum og hámarkshæð smáhýsa.
Skipulagsnefnd mat tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Víðiholts í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal lóðarhöfum við Víðiholt, við Asparholt 2,4,6,8,10,12 og 14 sem og Lyngholt 6, 8,10, 15,17 og 19.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
10. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Víðiholts sem nær til veggja, girðinga og smáhýsa.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
- Heimilt er að setja skjólvegg allt að 1,8 m háan á milli lóða eða út frá horni endahúsa, allt að 4,4 m frá byggingarreit.
- Heimilt er að skerma lóðina af með gróðri eða girðingu allt að 1,5 m hárri. Ef girðing á lóðarmörkum er höfð hærri en 1,2 m skal koma fyrir uppbrotum í vegg með gróðurhólfum.
- Heimilt er að setja upp eitt smáhýsi á hverja rað- og parhúsalóð, allt að 5 m² að stærð. Að öðru leiti gilda ákvæði byggingarreglugerðar um fjarlægð smáhýsa frá lóðarmörkum og hámarkshæð smáhýsa.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Víðiholts í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal lóðarhöfum við Víðiholt, við Asparholt 2,4,6,8,10,12 og 14 sem og Lyngholt 6, 8,10, 15,17 og 19.