Afgreiðsla skipulagsnefndar - Þorraholt 9 og 15 - auka íbúðir.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
29. (2177). fundur
Bæjarráð staðfestir, skv. heimild í 5.mgr. 35.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 14. ágúst 2025 varðandi fyrirspurn lóðarhafa um tillögu að útfærslu á íbúðum á jarðhæðum fjölbýlishúsanna að Þorraholti 9 og 15. Útfærslan kallar í fjölgun íbúða á hvorri lóð eða um tvær íbúðir alls. Stærð bílageymsla er næg til að þjóna þessari fjölgun íbúða.
Skipulagsnefnd taldi að útfærsla með íbúð á jarðhæð geri aðkomu að húsinu meira aðlaðandi og féllst því á að tillagan nái fram að ganga.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga
Í samræmi 2.ml.3.mgr.44.gr.sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
11. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um tillögu að útfærslu á íbúðum á jarðhæðum fjölbýlishúsanna að Þorraholti 9 og 15. Útfærslan kallar í fjölgun íbúða á hvorri lóð eða um tvær íbúðir alls. Stærð bílageymsla er næg til að þjóna þessari fjölgun íbúða.
Skipulagsnefnd telur að útfærsla með íbúð á jarðhæð geri aðkomu að húsinu meira aðlaðandi og fellst því á að tillagan nái fram að ganga.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga
Í samræmi 2.ml.3.mgr.44.gr.sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda.