Beint í efni

Langalína 8 leikskóli - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2507352

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

34. (2182). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Garðabæ, kt. 570169-6109 leyfi fyrir byggingu leiksskóla byggður úr forsmíðuðum húseiningum (tímabundið úrræði) að Löngulínu 8.

Bæjarráð Garðabæjar

02

29. (2177). fundur

Bæjarráð staðfestir, skv. heimild í 5.mgr. 35.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 14. ágúst 2025 varðandi umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir leikskóla til skemmri tíma á lóð Sjálandsskóla innan byggingarreits. Flatarmál byggingar yrði 616 m2 á einni hæð.
Skipulagsstjóri lagði fram tillögu að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til lóðar Sjálandsskóla, sem gerir ráð fyrir að eftirfarandi ákvæði bætist við greinargerð deiliskipulagsins: "Heimilt er að nýta skólalóðina innan byggingarreits sem stæði fyrir færanlegar kennslustofur og önnur nauðsynleg rými fyrir grunnskólastarfsemi eða leikskólastarfsemi til bráðabirgða enda uppfylli þær kröfur byggingarreglugerðar um brunavarnir. Að öðru leyti gilda áður útgefnir skilmálar."
Skipulagsnefnd mat tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Ása og Grunda í samræmi við 2.mgr.43.greinar skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2.ml.3.mgr.44.greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu.
Skipulagsnefnd mælti með því að skoðað verði að nýta hluta lóðarinnar Ránargrund 3 sem er víkjandi í deiliskipulagi undir starfsemi skólalóðar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

11. fundur

Lögð fram umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir leikskóla til skemmri tíma á lóð Sjálandsskóla innan byggingarreits. Flatarmál byggingar yrði 616 m2 á einni hæð.

Skipulagsstjóri leggur fram tillögu að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til lóðar Sjálandsskóla, sem gerir ráð fyrir að eftirfarandi ákvæði bætist við greinargerð deiliskipulagsins: "Heimilt er að nýta skólalóðina innan byggingarreits sem stæði fyrir færanlegar kennslustofur og önnur nauðsynleg rými fyrir grunnskólastarfsemi eða leikskólastarfsemi til bráðabirgða enda uppfylli þær kröfur byggingarreglugerðar um brunavarnir. Að öðru leyti gilda áður útgefnir skilmálar."
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Ása og Grunda í samræmi við 2.mgr.43.greinar skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2.ml.3.mgr.44.greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu.
Skipulagsnefnd mælir með því að skoðað verði að nýta hluta lóðarinnar Ránargrund 3 sem er víkjandi í deiliskipulagi undir starfsemi skólalóðar.