Nýhöfn 1-5, breyting á bílastæðum
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
17. (969). fundur
Bæjastjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 21. nóvember 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Sjálands sem nær til lóðarinnar Nýhöfn 1-5 og svæðis vestan við lóðina að lokinni auglýsingu ásamt athugasemd sem borist hefur. Athugasemd lýtur mest að atriðum sem varða umferð og yfirborðsútfærslu gatna og gatnamóta. Skipulagsnefnd taldi að mögulegt væri að gera einhverjar úrbætur sem kalli þó ekki á breytingu deiliskipulags. Skipulagsnefnd taldi að ekki væri svigrúm til þess að fella út bílastæði úr deiliskipulagi til að koma til móts við sjónarmið um greiðfærari götu í Löngulínu enda varðar það grundvallar hugmynd deiliskipulagsins. Skipulagsnefnd vísaði athugasemd til umhverfissviðs til skoðunar. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna óbreytta frá auglýstri tillögu sem breytingu á deiliskipulagi Sjálands í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
02
43. (2191). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 21. nóvember 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Sjálands sem nær til lóðarinnar Nýhöfn 1-5 og svæðis vestan við lóðina að lokinni auglýsingu ásamt athugasemd sem borist hefur.
Athugasemd lýtur mest að atriðum sem varða umferð og yfirborðsútfærslu gatna og gatnamóta. Skipulagsnefnd taldi að mögulegt væri að gera einhverjar úrbætur sem kalli þó ekki á breytingu deiliskipulags. Skipulagsnefnd taldi að ekki væri svigrúm til þess að fella út bílastæði úr deiliskipulagi til að koma til móts við sjónarmið um greiðfærari götu í Löngulínu enda varðar það grundvallar hugmynd deiliskipulagsins.
Skipulagsnefnd vísaði athugasemd til umhverfissviðs til skoðunar.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna óbreytta frá auglýstri tillögu sem breytingu á deiliskipulagi Sjálands í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
17. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Sjálands sem nær til lóðarinnar Nýhöfn 1-5 og svæðis vestan við lóðina að lokinni auglýsingu ásamt athugasemd sem borist hefur.
Athugasemd lýtur mest að atriðum sem varða umferð og yfirborðsútfærslu gatna og gatnamóta. Skipulagsnefnd telur að mögulegt sé að gera einhverjar úrbætur sem kalli þó ekki á breytingu deiliskipulags. Skipulagsnefnd telur að ekki sé svigrúm til þess að fella út bílastæði úr deiliskipulagi til að koma til móts við sjónarmið um greiðfærari götu í Löngulínu enda varðar það grundvallar hugmynd deiliskipulagsins.
Skipulagsnefnd vísar athugasemd til umhverfissviðs til skoðunar.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna óbreytta frá auglýstri tillögu sem breytingu á deiliskipulagi Sjálands í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
15. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Sjálands sem nær til lóðarinnar Nýhöfn 1-5 og götunnar vestan við að lokinni auglýsingu.
Ein athugasemd hefur borist.
Vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði.
Bæjarráð Garðabæjar
05
29. (2177). fundur
Bæjarráð staðfestir, skv. heimild í 5.mgr. 35.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 14. ágúst 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Sjálands sem gerir ráð fyrir breytingu á fyrirkomulagi bílastæða framan við Nýhöfn 1-5.Tillagan gerir enn fremur ráð fyrir stækkun lóðarinnar Nýhöfn 1-5. Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vekja skal athygli á auglýsingunni í nánasta nágrenni með því að bera dreifibréf í húsin Nýhöfn 1, 2,3, 4,5,6 og 7 sem og Löngulínu 13, 15,17, 19,20, 21,22, 23, 24 og 26.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
11. fundur
Lögð fram breytt tillaga að breytingu deiliskipulags Sjálands sem gerir ráð fyrir breytingu á fyrirkomulagi bílastæða framan við Nýhöfn 1-5.Tillagan gerir ennfremur ráð fyrir stækkun lóðarinnar Nýhöfn 1-5. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr.og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vekja skal athygli á auglýsingunni í nánasta nágrenni með því að bera dreifibréf í húsin Nýhöfn 1, 2,3, 4,5,6 og 7 sem og Löngulínu 13, 15,17, 19,20, 21,22, 23, 24 og 26.
Bæjarstjórn Garðabæjar
08
3. (955). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 13. febrúar 2025 varðandi breytingu á deiliskipulagi Sjálands sem gerir ráð fyrir breytingu á fyrirkomulagi bílastæða framan við Nýhöfn 1-5.Tillagan gerir ennfremur ráð fyrir stækkun lóðarinnar Nýhöfn 1-5 um 310 m2. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vekja skal athygli á auglýsingunni í nánasta nágrenni með því að bera dreifibréf í húsin Nýhöfn 1, 2,3, 4,5,6 og 7 sem og Löngulínu 13, 15,17, 19,20, 21,22, 23, 24 og 26.
Bæjarráð Garðabæjar
09
7. (2155). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 13. febrúar 2025 varðandi breytingu á deiliskipulagi Sjálands sem gerir ráð fyrir breytingu á fyrirkomulagi bílastæða framan við Nýhöfn 1-5.Tillagan gerir ennfremur ráð fyrir stækkun lóðarinnar Nýhöfn 1-5 um 310 m2.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vekja skal athygli á auglýsingunni í nánasta nágrenni með því að bera dreifibréf í húsin Nýhöfn 1, 2,3, 4,5,6 og 7 sem og Löngulínu 13, 15,17, 19,20, 21,22, 23, 24 og 26.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
2. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Sjálands sem gerir ráð fyrir breytingu á fyrirkomulagi bílastæða framan við Nýhöfn 1-5.Tillagan gerir ennfremur ráð fyrir stækkun lóðarinnar Nýhöfn 1-5 um 310 m2.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr.og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vekja skal athygli á auglýsingunni í nánasta nágrenni með því að bera dreifibréf í húsin Nýhöfn 1, 2,3, 4,5,6 og 7 sem og Löngulínu 13, 15,17, 19,20, 21,22, 23, 24 og 26.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
11
16. fundur
Lögð fram umsókn íbúa að Nýhöfn 1-5 um breytingu deiliskipulags Sjálands sem gerir ráð fyrir stækkun lóðar sem nemur ca 360 m2 fyrir bílastæði framan við innbyggða bílageymslu og annarri útfærslu á bílastæðum í götu.
Vísað til umhverfissviðs.