Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar - Kjóavellir deiliskipulagsbreyting. Garðlönd.

Málsnúmer 2407143

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

29. (2177). fundur

Bæjarráð staðfestir, skv. heimild í 5.mgr. 35.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 14. ágúst 2025 að samþykkja tillögu að breytingu deiliskipulags Kjóavalla sem nær til svæðis innan lögsögu Kópavogsbæjar. Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 11. mars 2025 með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Kjóavelli. Tillagan var auglýst í Lögbirtingablaðinu og Morgunblaðinu þann 10. apríl 2025 og Kópavogspóstinum þann 17. apríl 2025 og er hún jafnframt aðgengileg á vefsíðu Kópavogsbæjar og í Skipulagsgátt málsnr. 453/2025.
Kynningartími var frá 10. apríl 2025 til 30. maí 2025. Athugasemdir og ábendingar bárust á kynningartíma.
Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Kópavogs þann 7. júlí 2025 var tillagan lögð fram að nýju. Skipulagsráð samþykkti tillöguna og vísaði til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð Kópavogs, í umboði bæjarstjórnar, samþykkti á fundi sínum þann 17. júlí 2025 breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla.
Tillagan var lögð fyrir skipulagsnefnd þann 29.ágúst 2024 en fyrir mistök var bókað að tillagan væri samþykkt um leið og önnur breytingartillaga á deiliskipulagi Kjóavalla innan lögsögu Kópavogs og snerist um miðlunartanka.
Þar sem að tillagan hafði verið lögð fyrir skipulagsnefnd áður en hún var auglýst lýtur skipulagsnefnd Garðabæjar svo á að heimild til auglýsingar hafi verið til staðar. Athugasemdir og ábendingar sem borist hafa lögð fram ásamt umsögn skipulagsdeildar Kópavogs og lagfærður uppdráttur lögð fram.
Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkti tillöguna sem breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla með þeim smávægilegu breytingum sem gerðar voru af skipulagsdeild Kópavogsbæjar við samþykkt breytingarinnar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

11. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kjóavalla sem nær til svæðis innan lögsögu Kópavogsbæjar. Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 11. mars 2025 með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Kjóavelli. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:2000 dags. 28. júní 2024, uppfærður 14. ágúst 2024 og 28. febrúar 2025. Tillagan var auglýst í Lögbirtingablaðinu og Morgunblaðinu þann 10. apríl 2025 og Kópavogspóstinum þann 17. apríl 2025 og er hún jafnframt aðgengileg á vefsíðu Kópavogsbæjar og í Skipulagsgátt málsnr. 453/2025.
Kynningartími var frá 10. apríl 2025 til 30. maí 2025. Athugasemdir og ábendingar bárust á kynningartíma.

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Kópavogs þann 7. júlí 2025 var tillagan lögð fram að nýju að lokinni auglýsingu ásamt innsendum athugasemdum og umsögn skipulagsdeildar dags. 13. Júní 2025. Skipulagsráð samþykkti tillöguna og vísaði til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð Kópavogs, í umboði bæjarstjórnar, samþykkti á fundi sínum þann 17. júlí 2025 breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla.
Tillagan var lögð fyrir skipulagsnefnd þann 29.ágúst 2024 en fyrir mistök var bókað að tillagan væri samþykkt um leið og önnur breytingartillaga á deiliskipulagi Kjóavalla innan lögsögu Kópavogs og snerist um miðlunartanka.

Þar sem að tillagan hafði verið lögð fyrir skipulagsnefnd áður en hún var auglýst lýtur skipulagsnefnd Garðabæjar svo á að heimild til auglýsingar hafi verið til staðar. Athugasemdir og ábendingar sem borist hafa lögð fram ásamt umsögn skipulagsdeildar Kópavogs og lagfærður uppdráttur lögð fram.

Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkir tillöguna sem breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla með þeim smávægilegu breytingum sem gerðar voru af skipulagsdeild Kópavogsbæjar við samþykkt breytingarinnar.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

12. (945). fundur

"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 29. ágúst 2024, varðandi breytingu deiliskipulags Kjóavalla innan lögsögu Kópavogsbæjar. Deiliskipulagið nær til beggja sveitarfélaga. Tillagan gerir ráð fyrir því að svæði austan Markavegar verði skilgreint sem svæði fyrir garðlönd (skólagarða) og minnkun á lóð fyrir fjarskiptamastur sem staðsett er á sama svæði. Einnig breyting sama deiliskipulags sem nær til lóðar miðlunargeyma við Vatnsendahlíð, en þar er gert ráð fyrir einum miðlunargeymi til viðbótar. Tillagan er samþykkt í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, enda ekki gerð athugasemd af hálfu Garðabæjar við tillögurnar."

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

12. (945). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

05

32. (2133). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 29. ágúst 2024, varðandi breytingu deiliskipulags Kjóavalla innan lögsögu Kópavogsbæjar. Deiliskipulagið nær til beggja sveitarfélaga. Tillagan gerir ráð fyrir því að svæði austan Markavegar verði skilgreint sem svæði fyrir garðlönd (skólagarða) og minnkun á lóð fyrir fjarskiptamastur sem staðsett er á sama svæði. Einnig breyting sama deiliskipulags sem nær til lóðar miðlunargeyma við Vatnsendahlíð, en þar er gert ráð fyrir einum miðlunargeymi til viðbótar.
Tillagan er samþykkt í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, enda ekki gerð athugasemd af hálfu Garðbæjar við tillögurnar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

10. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kjóavalla innan lögsögu Kópavogsbæjar. Deiliskipulagið nær til beggja sveitarfélaga. Tillagan gerir ráð fyrir því að svæði austan Markavegar verði skilgreint sem svæði fyrir garðlönd (skólagarða) og minnkun á lóð fyrir fjarskiptamastur sem er staðsett á sama svæði.
Einnig lögð fram tillaga að breytingu sama deiliskipulags sem nær til lóðar miðlunargeyma við Vatnsendahlíð en þar er gert fyrir einum miðlunargeymi til viðbótar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkir deiliskipulagsbreytingarnar í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010 enda ekki gerð athugsemd að hálfu Garðabæjar við tillögurnar.