Ljósakur 17 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
11. fundur
Lögð fram fyrirspurn um tillögu að útfærslu á austurhluta lóðar endaraðhússins Ljósakur 17. Tillagan gerir ráð fyrir gróðurhúsi, pergólu yfir heitum potti og girðingum (skjólveggjum) á lóðarmörkum að götu en utan lóðarmarka að austanverðu.
Með vísan í samþykkt Garðabæjar um veggi og girðingar mælir skipulagsnefnd með því að skjólveggur sem snýr að götu sé 1,5 m að hæð eða fjær lóðarmörkum en 30 cm ef hann er 1,8 m að hæð. Runnagróður komi þá milli gangstéttar og skjólveggjar ef hann liggur ekki við lóðarmörk.
Þar sem girðingar (skjólveggir) yrðu samkvæmt tillögunni utan lóðarmarka að girðingu (fallvörn) Garðabæjar meðfram göngustíg bendir nefndin á að samkomulag Garðabæjar og lóðarhafa þarf að liggja fyrir um girðinguna og það svæði sem lendir innan hennar. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að samkomulag verði gert sem er í samræmi við framlagða tillögu. Nefndin bendir einnig á að samþykki annarra eigenda raðhúslengjunnar fyrir tillögunni þarf að liggja fyrir.