Stekkholt 6 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
46. (2194). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sigurði Hrafni Kiernan, kt. 190969-4799, leyfi fyrir sólskála á þaki einbýlishúss að Stekkholti 6.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
17. fundur
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi sé veitt sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
Bæjarráð Garðabæjar
04
29. (2177). fundur
Bæjarráð staðfestir, skv. heimild í 5.mgr. 35.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 14. ágúst 2025 varðandi fyrirspurn lóðarhafa um hugmynd að gróðurhúsi á þaki einbýlishússins að Stekkholti 6 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsnefnd telur að áhrif gróðurhúsa ofan á þaki tveggja hæða einbýlishúsa við Stekkholt eða Útholt á útsýni frá fjölbýlishúsum við Vorbraut og upplifun íbúa séu umtalsverð. Fordæmisgildi þess að veita byggingarleyfi fyrir þessháttar útfærslu á einni lóð er mikið og hefur það því áhrif á fjölda eigna.
Svar skipulagsnefndar var því neikvætt.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
11. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um hugmynd að gróðurhúsi á þaki einbýlishússins að Stekkholti 6 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsnefnd telur að áhrif gróðurhúsa ofan á þaki tveggja hæða einbýlishúsa við Stekkholt eða Útholt á útsýni frá fjölbýlishúsum við Vorbraut og upplifun íbúa séu umtalsverð. Fordæmisgildi þess að veita byggingarleyfi fyrir þessháttar útfærslu á einni lóð er mikið og hefur það því áhrif á fjölda eigna.
Svar skipulagsnefndar er því neikvætt.
Bæjarráð Garðabæjar
06
23. (2171). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sigurði Hrafni Kiernan, kt. 190969-4799, leyfi fyrir byggingu einbýlishúss að Stekkholti 6.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
10. fundur
Lögð fram fyrirspurn sem felur í sér byggingu gróðurhúss á þaki við Stekkholt 6.
Þak gróðurhúss mun ná allt að 1 m upp fyrir uppgefna hámarkshæð skv. deiliskipulagi Hnoðraholts norður.
Vísað til umsagnar hjá deiliskipulagshöfundi.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
09
5. fundur
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.