Beint í efni

5. fundur

30.04.2025
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

5. fundur

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

30.04.2025

Kl. 11:00 - 12:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri skipulagsmála

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 2502047

01

Vetrarbraut 21A - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja byggingarleyfi fyrir stýrihúsi (dælustöð) fyrir hitaveitu við Vetrarbraut 21a.

Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

Málsnúmer 2501296

02

Kumlamýri 25-27 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um aðlögun lóðarmarka að landi Garðabæjar við Kumlamýri 25-27.

Hugmynd deiliskipulagsins er sú að mörk á milli einalóða og opinna svæða séu sýnileg á yfirborði með hæðarmun.

Vegna þess er mikilvægt að flái sé staðsettur á lóðarmörkum. Ef aðstæður í landi kalla á að flái sé staðsettur utan eða innan við lóðarmörk er hægt að fallast á slíka útfærslu.

Skipulagsstjóri getur því ekki fallist á að jafna hæðarmun milli einkalóðar og bæjarlands út á opnu svæði.

Málsnúmer 2503299

03

Þorraholt 7 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi við Þorraholt 7, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

Málsnúmer 2503548

04

Eskiás 7 - Umsókn um byggingarleyfi



Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

Málsnúmer 2504023

05

Stekkholt 6 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

Málsnúmer 2504202

06

Stekkholt 55-61 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn sem snýr að hækkun gólfkóta endahúss, nr. 55 við Stekkholt 55-61 um 20 cm, ásamt umsögn gatnahönnuða.

Með tilliti til umsagnar gatnahönnuðar getur skipulagsstjóri ekki fallist á að hækka gólfkóta endaraðhúss nr. 55 um 20 cm, líkt og fyrirspurn gerir ráð fyrir. Þar sem botnlanginn er í töluverðum halla verður hæðamunur á götu og bílskúr meiri en æskilegt er.

Skipulagsstjóri gerir aftur á móti ekki athugasemd við fyrri fyrirspurn sem gerði ráð fyrir því að gólfkóti húss númer 57 lækki um 10 cm og að gólfkóti húss númer 55 hækki um 10 cm.

Málsnúmer 2504217

07

Kjarrprýði 4 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagðra uppdrætti. Skipulagsstjóri leggur áherslu á að allur frágangur á lóð og á lóðarmörkum skuli miða að því viðhalda upprunalegu yfirbragði á lóðinni.

Málsnúmer 2504218

08

Kjarrprýði 3 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem erí samræmi við framlagðra uppdrátta. Skipulagsstjóri leggur áherslu á að allur frágangur á lóð og á lóðarmörkum skuli miða að því viðhalda upprunalegu yfirbragði á lóðinni.

Málsnúmer 2504274

09

Vorbraut 5 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

Málsnúmer 2504319

10

Maríugata 13-15 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram lóðaruppdrættir sem gera ráð fyrir því að sérafnotareitir við Maríugötu 13-15 eru stækkaðir. Einnig gerir uppdrátturinn ráð fyrir því að við sérafnotareiti eru skjólveggir allt að 1,9 m að hæð. Skipulagsstjóri getur almennt ekki fallist á skjólveggi hærri en 1,5 m, líkt og deiliskipulag gerir ráð fyrir. Skipulagsstjóri getur vegna nálægðar fallist á að skjólveggir milli afnotareita séu allt að 1,8 m. Að öðru leiti gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við framlagða uppdrætti.

Málsnúmer 2504323

11

Suðurhraun 2 - Umsókn um byggingarleyfi - rými 0101 og 0102

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við Suðurhraun 2, að undangenginni deiliskipulagsbreytingu þar sem byggingarreitur var stækkaður. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.