Beint í efni

Votakur 3 - Deiliskipulagsbreyting

Málsnúmer 2512238

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

5. (975). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 26. febrúar 2026 varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Akra sem nær til lóðarinnar Votakur 3 að lokinni grenndarkynningu. Gert er ráð fyrir stækkun ytri byggingarreits til vesturs þar sem heimilt yrði að stækka kjallara og útbúa svalir ofan á viðbyggingu. Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting á deiliskipulagi Akra.

Bæjarráð Garðabæjar

02

8. (2203). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 26. febrúar 2026 varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Akra sem nær til lóðarinnar Votakur 3 að lokinni grenndarkynningu. Gert er ráð fyrir stækkun ytri byggingarreits til vesturs þar sem heimilt yrði að stækka kjallara og útbúa svalir ofan á viðbyggingu.
Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting á deiliskipulagi Akra.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

4. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Akra sem nær til lóðarinnar Votakur 3 að lokinni grenndarkynningu. Gert er ráð fyrir stækkun ytri byggingarreits til vesturs þar sem heimilt yrði að stækka kjallara og útbúa svalir ofan á viðbyggingu.
Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting á deiliskipulagi Akra.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

2. (972). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. janúar 2026 varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi Akra sem nær til lóðarinnar Votakur 3. Gert er ráð fyrir stækkun ytri byggingarreits til vesturs þar sem heimilt yrði að stækka kjallara og útbúa svalir ofan á viðbyggingu. Skipulagsnefnd mat tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og vísaði henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal lóðarhöfum að Votakri 1 og 5 og Stórakri 2, 4, og 6.

Bæjarráð Garðabæjar

05

1. (2196). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. janúar 2026 varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi Akra sem nær til lóðarinnar Votakur 3. Gert er ráð fyrir stækkun ytri byggingarreits til vesturs þar sem heimilt yrði að stækka kjallara og útbúa svalir ofan á viðbyggingu.
Skipulagsnefnd mat tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og vísaði henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal lóðarhöfum að Votakri 1 og 5 og Stórakri 2, 4, og 6.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

1. fundur

Lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi Akra sem nær til lóðarinnar Votakur 3. Gert er ráð fyrir stækkun ytri byggingarreits til vesturs þar sem heimilt yrði að stækka kjallara og útbúa svalir ofan á viðbyggingu.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal lóðarhöfum að Votakri 1 og 5 og Stórakri 2, 4, og 6.