2. (2197). fundur
2. (2197). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
20.01.2026
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
Málsnúmer 2507256
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026 (2026 - 2029) - Hagræðing
Bæjarstjóri kynnti útfærslu hagræðingar vegna fjárhagsáætlunar Garðabæjar fyrir 2026.
Hagræðingarkrafa nemur alls kr. 200.000.000 og skiptist eftirfarandi á milli sviða:
1. Velferðarsvið kr. 50.000.000. Hlutfall hagræðingar 1,0%
2. Fræðslu- og frístundasvið kr. 80.000.000. Hlutfall hagræðingar 0,4%.
3. Umhverfissvið kr. 50.000.000. Hlutfall hagræðingar 1,4% (án eignasjóðs).
4. Þjónustu- og þróunarsvið kr. 15.000.000. Hlutfall hagræðingar 2,0%.
5. Fjármála- og stjórnsýslusvið kr. 5.000.000. Hlutfall hagræðingar 0,5%.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi hagræðingartillögur við fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026 (2026-2029).
Málsnúmer 2512299
02
Kaldakur 8 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Guðrúnu G. Johansen Steindórsdóttur, kt. 120571-3629, leyfi til að breyta fylgirými F yfir í T, að Kaldakri 8.
Málsnúmer 2510311
03
Miðhraun 22 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Top trading ehf., kt. 410217-0740, leyfi fyrir milligólfi og breytingum á innra fyrirkomulagi atvinnuhúsnæðis að Miðhrauni 22.
Málsnúmer 2408215
04
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi viðbrögð við niðurstöðu ESA vegna tekjuskattsundanþágu Sorpu bs., dags. 16.01.26.
Bæjarstjóri kynnti stöðu málefna Sorpu bs. varðandi viðbrögð við niðurstöðu ESA um tekjuskattsundanþágu.
Málsnúmer 2601280
05
Beiðni Skátafélagsins Vífils og Hjálparsveitar skáta í Garðabæ um niðurfellingu fasteignagjalda 2026, dags. 13.01.26.
Bæjarráð samþykkir að veita Skátafélaginu Vífli og Hjálparsveit skáta í Garðabæ styrk að fjárhæð kr. 5.647.313 til greiðslu fasteignagjalda árið 2026.
Málsnúmer 2601282
06
Beiðni Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa um niðurfellingu fasteignagjalda 2026, dags. 15.01.26.
Bæjarráð samþykkir að veita Styrktar- og líknarsjóði Oddfellowa styrk að fjárhæð kr. 2.423.935 til greiðslu fasteignagjalda árið 2026.