Beint í efni

Stofnun nýrra félaga Sorpu bs. vegna ESA máls.

Málsnúmer 2408215

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

3. (973). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu sem felur í sér að SORPU bs. er heimilað að stofna tvö ný dótturfélög með takmarkaðri ábyrgð, sem munu taka yfir efnahagslega starfsemi Sorpu bs. í samræmi við sátt við ESA.
Annars vegar er um að ræða félag sem annast mun móttöku rekstrarúrgangs og rekstur urðunar og hins vegar félag sem annast mun rekstur GAJA og meðhöndlun lífræns úrgangs.

Bæjarráð Garðabæjar

02

4. (2199). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að staðfesta tillögu sem felur í sér að SORPU bs. er heimilað að stofna tvo ný dótturfélög með takmarkaðri ábyrgð, sem munu taka yfir efnahagslega starfsemi Sorpu bs. í samræmi við sátt við ESA.
Annars vegar er um að ræða félag sem annast mun móttöku rekstrarúrgangs og rekstur urðunar og hins vegar félag sem annast mun rekstur GAJA og meðhöndlun lífræns úrgangs.

Bæjarráð Garðabæjar

03

2. (2197). fundur

Bæjarstjóri kynnti stöðu málefna Sorpu bs. varðandi viðbrögð við niðurstöðu ESA um tekjuskattsundanþágu.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

12. (945). fundur

"Bæjarstjórn samþykkir að efnahagsleg starfsemi Sorpu bs. verði færð í félag, eða eftir atvikum félög, með takmarkaðri ábyrgð. Efnahagsleg starfsemi í þessu tilliti tekur til reksturs móttöku- og flokkunarstöðvar í Gufunesi, gas- og jarðgerðarstöðvar á Álfsnesi og urðunarstaðar á Álfsnesi. Tillögur um nánari útfærslur þessa munu liggja fyrir í upphafi árs 2025. Framangreind samþykkt bindur ekki hendur eigenda við frekari stefnumótun, þ.á.m. varðandi breytingar á rekstrarformi Sorpu bs., kjósi þeir svo."

Bæjarráð Garðabæjar

05

30. (2131). fundur

Kynning á drögum að samkomulagi um lyktir máls Eftirlitsstofnunar ESA um ríkisstyrk til handa Sorpu í formi tekjuskattsundanþágu.
Haraldur Flosi Tryggvason Klein, lögmaður, mætti á fundinn og kynnti málið. Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sorpu bs., sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir, fyrir hönd Garðabæjar, að efnahagsleg starfsemi Sorpu bs. verði færð í félag, eða eftir atvikum félög, með takmarkaðri ábyrgð. Efnahagsleg starfsemi í þessu tilliti tekur til reksturs móttöku- og flokkunarstöðvar í Gufunesi, gas- og jarðgerðarstöðvar á Álfsnesi og urðurnarstaðar á Álfsnesi. Tillögur um nánari útfærslur þessa munu liggja fyrir í upphafi árs 2025. Framangreind samþykkt bindur ekki hendur eigenda við frekari stefnumótun, þ.á.m. varðandi breytingar á rekstrarformi Sorpu bs., kjósi þeir svo.