Beint í efni

3. (973). fundur

05.02.2026
Bæjarstjórn Garðabæjar

3. (973). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

05.02.2026

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Margrét Bjarnadóttir - forseti bæjarstjórnar
  • Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
  • Björg Fenger - bæjarfulltrúi
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
  • Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
  • Guðfinnur Sigurvinsson - bæjarfulltrúi
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Ingvar Arnarson - bæjarfulltrúi
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Guðlaugur Kristmundsson - bæjarfulltrúi

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.

Margrét Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 16. janúar 2026 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2601022F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 20/1 ´26.

Fundargerðin sem er 6.tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

Málsnúmer 2601035F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 27/1 ´26.

Björg Fenger ræddi 1.tl. Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2025 og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fagna niðurstöðum þjónustukönnunar Gallup fyrir árið 2025 sem staðfesta að íbúar Garðabæjar eru almennt mjög ánægðir og er heildarupplifun bæjarbúa af þjónustu sveitarfélagsins jákvæð og hvergi meiri meðal 20 stærstu sveitarfélaga landsins.

Heildaránægja með þjónustu Garðabæjar mælist 86% og er bæjarfélagið í efstu sætum samanborið við 20 stærstu sveitarfélög landsins. Ánægja með leikskólaþjónustu, grunnskóla og aðstöðu til íþróttaiðkunar er mikil og mælist með því hæsta sem gerist í samanburði við önnur sveitarfélög.

Niðurstöðurnar staðfesta sterkar grunnstoðir bæjarins og endurspegla faglega og metnaðarfulla vinnu starfsfólks Garðabæjar.

Um leið minna niðurstöðurnar á mikilvægi þess að halda áfram að þróa og bæta þjónustu í ört vaxandi sveitarfélagi. Ánægja eykst frá fyrra ári með þjónustu við eldri borgara og við fatlað fólk sem sýnir að markviss umbótavinna er að skila árangri. Samhliða því er ljóst að áfram þarf að rýna þjónustuna og grípa til frekari úrbóta þar sem þörf er á.

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja þjónustukannanir sem þessar mikilvægt stjórntæki og munu hér eftir sem hingað til vinna að því að efla gæði þjónustu við íbúa Garðabæjar enn frekar með skilvirkni og hagkvæmni að leiðarljósi þannig að ánægja bæjarbúa aukist.

Við þökkum stjórnendum og starfsfólki bæjarins fyrir mikinn metnað og fagmennsku í sínum störfum sem skilar sér í ánægju íbúa."

Þá ræddi Björg 3.tl. útboð - stækkun Tónlistarskóla og 7.tl. Garðbæingurinn okkar árið 2025.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 1.tl. Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2025, 6.tl. Holtsbúð 87 - samstarf um endurbætur og notkun hússins og 7.tl. Garðbæingurinn okkar árið 2025.

Guðlaugur Kristmundsson ræddi 7.tl. Garðbæingurinn okkar 2025, 6.tl. Holtsbúð 87 - samstarf um endurbætur og notkun hússins og 1.tl. Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2025. Bókaði Guðlaugur að hann tæki undir framkomna bókun Bjargar Fenger. Loks ræddi hann 2.tl. samfélags- og viðburðarhús í Garðabæ.

Brynja Dan Gunnarsdóttir ræddi 7.tl. Garðbæingurinn okkar árið 2025 og 1.tl. Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2025.

Ingvar Arnarson ræddi 7.tl. Garðbæingurinn okkar árið 2025 og 1.tl. Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup.

Almar Guðmundsson ræddi 7.tl. Garðbæingurinn okkar árið 2025, 6.tl. Holtsbúð 87 - samstarf um endurbætur og notkun hússins og 1.tl. Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2025.

Guðfinnur Sigurvinsson ræddi fundargerðina og 1.tl. Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2025.

Fundargerðin sem er 11.tl. er samþykkt samhljóða.


Málsnúmer 2601048F

03

Fundargerð bæjarráðs frá 3/2 ´26.

Gunnar Valur Gíslason ræddi 16.tl. stofnun nýrra félaga Sorpu bs. vegna ESA máls.

Björg Fenger ræddi 5.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Hnoðraholt norður - deiliskipulagsbreyting leikskóla- og þjónustulóð, 6.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Hnoðraholt háholt, deiliskipulag, 7.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Hnoðraholt -háholt - aðalskipulagsbreyting, 8.tl. Garðatorg - framkvæmdir í miðbæ og 17.tl. Miðgarður - skoðunarferð.

Fundargerðin sem er 17.tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

Málsnúmer 2601014F

04

Fundargerð leikskólanefndar frá 14/1 ´26.

Margrét Bjarnadóttir ræddi 1.tl. fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026 (2026-2029), 2.tl. Þróunarsjóður leikskóla 2026-2027 og 3.tl. leikskólar. Starfsáætlun 2024-2025. Umbótaáætlun 2025-2026.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2601021F

05

Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 16/1 ´26.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 1.-5.tl. styrki til menningarstarfsemi í Garðabæ.

Björg Fenger ræddi 1.-5.tl. styrki til menningarstarfsemi í Garðabæ og 6.tl. Menningardagskrá vor 2026.

Almar Guðmundsson ræddi 1.-5.tl. styrki til menningarstarfsemi í Garðabæ og 6.tl. Menningardagskrá vor 2026.

Guðfinnur Sigurvinsson ræddi 1.-5.tl. styrki til menningarstarfsemi í Garðabæ.

Guðlaugur Kristmundsson ræddi 1.-5.tl. styrki til menningarstarfsemi í Garðabæ.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2601039F

06

Fundargerð skipulagsnefndar frá 29/1 ´26.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2601008F

07

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 15/1 ´26.

Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 1.tl. fjárhagsáætlun 2026 - grunnskólar, 2.tl. Þróunarsjóður grunnskóla 2026, 3.tl. þrepaskipt skólaþjónusta í leik- og grunnskólum Garðabæjar og 4.tl. gæða kennslustundir - innleiðing gæða kennslustunda í grunnskóla í Garðabæ.

Guðlaugur Kristmundsson ræddi 4.tl. gæða kennslustundir - innleiðing gæða kennslustunda í grunnskóla í Garðabæ.

Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls að nýju og ræddi 4.tl. gæða kennslustundir - innleiðing gæða kennslustunda í grunnskóla í Garðabæ.

Guðlaugur Kristmundsson tók til máls að nýju og ræddi 4.tl. gæða kennslustundir - innleiðing gæða kennslustunda í grunnskóla í Garðabæ.

Almar Guðmundsson ræddi 4.tl. gæða kennslustundir - innleiðing gæða kennslustunda í grunnskóla í Garðabæ.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2601012F

08

Fundargerð umhverfisnefndar frá 14/1 ´26.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2601044F

09

Fundargerð velferðarráðs frá 30/1 ´26.

Gunnar Valur Gíslason ræddi 4.tl. búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti, 5.tl. endurskoðun á stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks og 7.tl. farsæld barna.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2601374

10

Fundargerð eigendafundar Sorpu bs. frá 19/1 ´26.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2501405

11

Fundargerðir stjórnar Sorpu bs. frá 10/11 og 10/12 ´25.

Gunnar Valur Gíslason ræddi fundargerð 10. desember 2025, 3.tl. hagræðingaraðgerðir í rekstri endurvinnslustöðva og 4.tl. undirbúningsfélag um byggingu hátæknibrennslu.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2601279

12

Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 14/1 ´26.

Gunnar Valur Gíslason ræddi 1.tl. árangur af hagræðingaraðgerðum.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2601375

13

Fundargerð stjórnar SSH frá 19/1 ´26.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2601376

14

Fundargerð Stefnuráðs byggðasamlaganna frá 7/11 ´25.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2601544

15

Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 23/1 ´26.

Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 1.tl. Skúlagata - endastöð, 2.tl. frítt fyrir ungmenni, 3.tl. Strætó.is, 4.tl. öryggismál vagna, 5.tl. nýtt félag og 6.tl. ársfundur og aðalfundur Strætó.

Guðlaugur Kristmundsson ræddi 2.tl. frítt fyrir ungmenni og 5.tl. nýtt félag.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 2.tl. frítt fyrir ungmenni og lagði fram svohljóðandi bókun:

"Garðabæjarlistinn hvetur til þess að Garðabær feti í fótspor höfuðborgarinnar og styðji inni í stjórn Strætó að almenningssamgöngur verði gerðar gjaldfrjálsar fyrir öll börn á grunnskólaaldri. Áætlað er að það kosti sveitarfélagið rúmar 24 milljónir árlega. Í dreifðum bæ eins og Garðabæ er sérstaklega mikilvægt að auka aðgengi allra barna að strætó, svo þau geti ferðast sjálf um bæinn. Það eykur sjálfstæði barna samhliða því að minnka skutl og þar með umferð."

Guðfinnur Sigurvinsson ræddi 2.tl. frítt fyrir ungmenni og fundargerðina.

Ingvar Arnarson ræddi 2.tl. frítt fyrir ungmenni og fundargerðina.

Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls að nýju og ræddi fundargerðina og 2.tl. frítt í strætó.

Almar Guðmundsson ræddi 2.tl. frítt í strætó og fundargerðina.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2601508

16

Fundargerð stjórnar SHS frá 9/1 ´26.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2408215

17

Stofnun nýrra félaga Sorpu bs. vegna ESA máls.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu sem felur í sér að SORPU bs. er heimilað að stofna tvö ný dótturfélög með takmarkaðri ábyrgð, sem munu taka yfir efnahagslega starfsemi Sorpu bs. í samræmi við sátt við ESA.

Annars vegar er um að ræða félag sem annast mun móttöku rekstrarúrgangs og rekstur urðunar og hins vegar félag sem annast mun rekstur GAJA og meðhöndlun lífræns úrgangs.