Fundargerð bæjarráðs frá 27/1 ´26.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
3. (973). fundur
Björg Fenger ræddi 1.tl. Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2025 og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fagna niðurstöðum þjónustukönnunar Gallup fyrir árið 2025 sem staðfesta að íbúar Garðabæjar eru almennt mjög ánægðir og er heildarupplifun bæjarbúa af þjónustu sveitarfélagsins jákvæð og hvergi meiri meðal 20 stærstu sveitarfélaga landsins.
Heildaránægja með þjónustu Garðabæjar mælist 86% og er bæjarfélagið í efstu sætum samanborið við 20 stærstu sveitarfélög landsins. Ánægja með leikskólaþjónustu, grunnskóla og aðstöðu til íþróttaiðkunar er mikil og mælist með því hæsta sem gerist í samanburði við önnur sveitarfélög.
Niðurstöðurnar staðfesta sterkar grunnstoðir bæjarins og endurspegla faglega og metnaðarfulla vinnu starfsfólks Garðabæjar.
Um leið minna niðurstöðurnar á mikilvægi þess að halda áfram að þróa og bæta þjónustu í ört vaxandi sveitarfélagi. Ánægja eykst frá fyrra ári með þjónustu við eldri borgara og við fatlað fólk sem sýnir að markviss umbótavinna er að skila árangri. Samhliða því er ljóst að áfram þarf að rýna þjónustuna og grípa til frekari úrbóta þar sem þörf er á.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja þjónustukannanir sem þessar mikilvægt stjórntæki og munu hér eftir sem hingað til vinna að því að efla gæði þjónustu við íbúa Garðabæjar enn frekar með skilvirkni og hagkvæmni að leiðarljósi þannig að ánægja bæjarbúa aukist.
Við þökkum stjórnendum og starfsfólki bæjarins fyrir mikinn metnað og fagmennsku í sínum störfum sem skilar sér í ánægju íbúa."
Þá ræddi Björg 3.tl. útboð - stækkun Tónlistarskóla og 7.tl. Garðbæingurinn okkar árið 2025.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 1.tl. Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2025, 6.tl. Holtsbúð 87 - samstarf um endurbætur og notkun hússins og 7.tl. Garðbæingurinn okkar árið 2025.
Guðlaugur Kristmundsson ræddi 7.tl. Garðbæingurinn okkar 2025, 6.tl. Holtsbúð 87 - samstarf um endurbætur og notkun hússins og 1.tl. Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2025. Bókaði Guðlaugur að hann tæki undir framkomna bókun Bjargar Fenger. Loks ræddi hann 2.tl. samfélags- og viðburðarhús í Garðabæ.
Brynja Dan Gunnarsdóttir ræddi 7.tl. Garðbæingurinn okkar árið 2025 og 1.tl. Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2025.
Ingvar Arnarson ræddi 7.tl. Garðbæingurinn okkar árið 2025 og 1.tl. Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup.
Almar Guðmundsson ræddi 7.tl. Garðbæingurinn okkar árið 2025, 6.tl. Holtsbúð 87 - samstarf um endurbætur og notkun hússins og 1.tl. Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2025.
Guðfinnur Sigurvinsson ræddi fundargerðina og 1.tl. Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2025.
Fundargerðin sem er 11.tl. er samþykkt samhljóða.