Beint í efni

Bílastæðasjóður Garðabæjar

Málsnúmer 2505510

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

16. (968). fundur

Bæjarstjórn staðfestir samþykktir um bílastæðasjóð.

Bæjarráð Garðabæjar

02

42. (2190). fundur

Lagðar fram samþykktir fyrir bílastæðasjóð Garðabæjar.

Þörf hefur verið talin á að stofna slíkan sjóð þar sem á mörgum stöðum í bænum er bifreiðum lagt ólöglega. Slíkt getur skapað hættu fyrir gangandi og akandi vegfarendur, tafið snjómokstur, viðhald og för sjúka- og slökkvibifreiða. Þá ber einnig á því að skammtímastæði á bílastæðum í Garðabæ eru notuð sem langtíma geymslur fyrir bifreiðar og aftanívagna.

Gert er ráð fyrir að sjóðurinn verði settur upp sem B-hluta fyrirtæki og að daglegur rekstur og mannaforráð fyrir sjóðinn verði í verkahring umhverfissviðs en að fjármála- og stjórnsýslusvið sjá um innheimtu gjalda/sekta og afgreiði andmæli vegna þeirra.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að staðfesta samþykktir um bílastæðasjóð Garðabæjar.

Bæjarráð Garðabæjar

03

41. (2189). fundur

Lagt fram minnisblað um Bílastæðasjóð Garðabæjar - rekstur og umfang, ásamt drögum að samþykktum fyrir Bílastæðasjóð Garðabæjar.

Þörf hefur verið talin á að stofna slíkan sjóð þar sem á mörgum stöðum í bænum er bifreiðum lagt ólöglega. Slíkt getur skapað hættu fyrir gangandi og akandi vegfarendur, tafið snjómokstur, viðhald og för sjúka- og slökkvibifreiða. Þá ber einnig á því að skammtímastæði á bílastæðum í Garðabæ eru notuð sem langtíma geymslur fyrir bifreiðar og aftanívagna.

Gert er ráð fyrir að sjóðurinn verði settur upp sem B-hluta fyrirtæki og að daglegur rekstur og mannaforráð fyrir sjóðinn verði í verkahring umhverfissviðs en að fjármála- og stjórnsýslusvið sjá um innheimtu gjalda/sekta og afgreiði andmæli vegna þeirra.

Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs nánari úrvinnslu málsins og stefnt er að því að uppfærð drög að samþykktum Bílastæðasjóðs Garðabæjar verði lögð fyrir bæjarráð til afgreiðslu í nóvember.