1. fundur
1. fundur
Velferðarráð Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
30.01.2026
Kl. 08:15 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- María Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Snædís Björnsdóttir - lögfræðingur
- Máni Geir Einarsson
- Pála Marie Einarsdóttir - deildarstjóri
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
01
Umsókn um fjárhagsaðstoð
Beiðni um undanþágu frá hámarki c-liðar 23. gr. reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ.
Samþykkt er að verða við beiðni um undanþágu frá ákvæði 23. gr. reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
02
Tölulegar upplýsingar í fjárhagsaðstoð
Tölfræði vegna fjárhagsaðstoðar á árinu 2025 lögð fram til umræðu og kynningar.
Tölfræði vegna fjárhagsaðstoðar á árinu 2025 lögð fram til umræðu og kynningar.
03
Endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ 2026
Drög að endurskoðuðum reglum um fjárhagsaðstoð í Garðabæ lögð fram til umræðu.
Velferðarráð gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi drög að endurskoðuðum reglum um fjárhagsaðstoð í Garðabæ og vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs.
04
Búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti
Staða verkefnis.
Teikning af búsetukjarna fyrir fatlað fólk, að Haustbraut 2, og deiliskipulag Sólholts lagt fram til umræðu og kynningar. Guðbjörg Brá Gísladóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs, sat fundinn undir þessum lið.
05
Endurskoðun á stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks
Drög að endurskoðaðri stefnu í málefnum fatlaðs fólks í Garðabæ lögð fram til kynningar og umræðu.
Drög að endurskoðaðri stefnu í málefnum fatlaðs fólks í Garðabæ lögð fram til kynningar og umræðu.
06
Samráðsfundir velferðasviða hjá SSH
Fundargerð frá desember 2025.
Fundargerð samráðshóps SSH um velferðarmál frá desember 2025 lögð fram til kynningar.
07
Farsæld barna
Innleiðing farsældarlaga - Stöðuskýrsla og aðgerðaráætlun 2024-2025 lögð fram til kynningar.
Innleiðing farsældarlaga - Stöðuskýrsla og aðgerðaáætlun 2024-2025 lögð fram til kynningar.
08
Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2025
Íbúakönnun - Þjónustukönnun Gallup 2025 lögð fram til kynningar.
Þjónustukönnun Gallup 2025, Hulda Hauksdóttir, deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar kynnti niðurstöður könnunar og svaraði fyrirspurnum fundarmanna.