10. fundur
10. fundur
Velferðarráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
18.12.2024
Kl. 16:00 - 17:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Rakel Steinberg Sölvadóttir - áheyrnarfulltrúi
- Vigdís Gunnarsdóttir - varamaður
Starfsmenn
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Snædís Björnsdóttir - lögfræðingur
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2410319
01
Búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti
Umræður um skipulag búsetuúrræða fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti.
Minnisblað sviðsstjóra velferðarsviðs um skipulag búsetuúrræða fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti lagt fram til kynningar og umræðu. Pála Marie Einarsdóttir, deildarstjóri stoðþjónustu, sat fundinn undir þessum lið.
Málsnúmer 2409068
02
Stuðningsfjölskylda fyrir fatlað barn
Ákvörðun afgreiðslufundar stuðnings- og stoðþjónustu dags. 24.9.2024 er vísað til velferðarráðs til endurskoðunar að beiðni umsækjanda.
Niðurstaða afgreiðslufundar stuðnings- og stoðþjónustu dags. 24.9.2024 er staðfest. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
Málsnúmer 2410314
03
Umsókn um fjárhagsaðstoð
Ákvörðun afgreiðslufundar fjárhagsaðstoðar dags. 7.11.2024 er vísað til velferðarráðs til endurskoðunar að beiðni umsækjanda.
Niðurstaða afgreiðslufundar fjárhagsaðstoðar dags. 7.11.2024 er staðfest. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
Málsnúmer 2304050
04
Umsókn um félagslega íbúð
Ákvörðun afgreiðslufundar húsnæðismála um afturköllun samþykkis á biðlista er vísað til velferðarráðs til endurskoðunar.
Velferðarráð vísar umsókninni aftur til afgreiðslu velferðarsviðs, til skoðunar á hvort undanþáguákvæði 6. gr. reglna Garðabæjar um félagslegt leiguhúsnæði eigi við í tilfelli umsækjenda og til framkvæmdar á stigamati.
Málsnúmer 2412033
05
Sameiginleg akstursþjónusta fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu
Samningur um sameiginlega akstursþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu lagður fram til kynningar.
Samningur um sameiginlega akstursþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu lagður fram til kynningar.
Málsnúmer 2412041
06
Framlag vegna barna með fjölþættan vanda og eða miklar þroska- og geðraskanir og eru vistuð utan heimilis á árinu 2024.
Erindi er varðar framlag vegna barna með fjölþættan vanda og eða miklar þroska- og geðraskanir og eru vistuð utan heimilis á árinu 2024, lagt fram til kynningar.
Erindi er varðar framlag vegna barna með fjölþættan vanda og eða miklar þroska- og geðraskanir og eru vistuð utan heimilis á árinu 2024, lagt fram til kynningar.
Málsnúmer 2412022
07
Þjónustusamningur við Fjölsmiðjuna
Þjónustusamningur við Fjölsmiðjuna lagður fram til kynningar.
Þjónustusamningur við Fjölsmiðjuna lagður fram til kynningar.
Málsnúmer 2412032
08
Drög að gjaldskrá akstursþjónustu fyrir fatlað fólk í Garðabæ 2025
Drög að gjaldskrá akstursþjónustu fyrir fatlað fólk í Garðabæ, lögð fram til kynningar.
Drög að gjaldskrá akstursþjónustu fyrir fatlað fólk í Garðabæ, lögð fram til kynningar.
Málsnúmer 2101189
09
Samráðsfundir velferðasviða hjá SSH
Fundargerð samráðshóps SSH um velferðarmál frá 13. nóvember 2024 lögð fram til kynningar.
Fundargerð samráðshóps Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um velferðarmál frá 13. nóvember 2024 lögð fram til kynningar.