5. fundur
5. fundur
Velferðarráð Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
23.05.2025
Kl. 08:15 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- María Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Rakel Steinberg Sölvadóttir - áheyrnarfulltrúi
- Vigdís Gunnarsdóttir - varamaður
Starfsmenn
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Snædís Björnsdóttir - lögfræðingur
- Pála Marie Einarsdóttir - deildarstjóri
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
01
Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins
Kynning á verkefnum farsældarráðs, Hanna Borg Jónsdóttir, verkefnastjóri farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins.
Kynning á verkefnum farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins. Hanna Borg Jónsdóttir, verkefnastjóri farsældarráðs, kynnir verkefnin og svarar fyrirspurnum nefndarmanna.
02
Samráðsfundir velferðasviða hjá SSH
Fundargerðir sviðsstjóra SSH frá mars og apríl 2025 lagðar fram til kynningar.
Fundargerðir sviðsstjóra velferðarsviða SSH frá mars og apríl 2025 lagðar fram til kynningar.
03
Vinna og virkni fatlaðs fólks í Garðabæ
Staða verkefnis.
Sviðsstjóri velferðarsviðs fer yfir tímalínu minnisblaðs og upplýsir um þá þætti sem hafa verið til skoðunar.
04
Búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti
Staða verkefnis.
Sviðsstjóri velferðarsviðs upplýsir um þá þætti sem hafa verið til skoðunar og kynnir frumdrög arkitekts að búsetuúrræðum fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti.
05
Úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála - notendasamningur
Úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála dags. 13.02.2025 lagður fram til kynningar og umræðu.
Úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála dags. 13.02.2025 lagður fram til kynningar og umræðu.
06
Úrskurðir úrskurðarnefndar velferðarmála
Yfirferð yfir úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála síðustu ára.
Lögfræðingur velferðarsviðs lagði fram yfirlit yfir úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála á árunum 2020-2025 þar sem Garðabær var aðili máls.
07
Tillaga um myndun rýnihópa varðandi þjónustu við fatlað fólk
Staða verkefnis.
Sviðsstjóri velferðarsviðs upplýsir um að vinna með rýnihópum í málefnum fatlaðs fólks hafi farið fram í viku 21 og að von sé á samantekt frá úrvinnsluaðila (Gallup) í byrjun næsta mánaðar.