Beint í efni

Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins

Málsnúmer 2505330

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

13. (965). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

13. (965). fundur

Bæjarstjórn samþykkir samning sveitarfélaganna Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar, Reykjavíkur og Seltjarnarnesbæjar um svæðisbundið farsældarráð, ásamt starfsreglum ráðsins og felur Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, að undirrita samninginn fyrir hönd Garðabæjar.

Bæjarráð Garðabæjar

03

34. (2182). fundur

Lagt fram bréf Samtaka sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu dags. 15. september 2025 varðandi drög að sameiginlegum samningi sveitarfélaganna um svæðisbundið farsældarráð í samræmi við 5.gr. laga nr. 86/2021 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Einnig fylgdi erindinu drög að skipuriti ráðsins og starfsreglum þess.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samning sveitarfélaganna Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar, Reykjavíkur og Seltjarnarnesbæjar um svæðisbundið farsældarráð, ásamt starfsreglum ráðsins og að fela Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, að undirrita samninginn fyrir hönd Garðabæjar.

Bæjarráð Garðabæjar

04

31. (2179). fundur

Lögð fram drög að starfsreglum, skipuriti og samningum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, varðandi farsældarráð höfuðborgarsvæðisins, sem hafi það að markmikið að styðja innleiðingu farsældarlaga og tryggja skilvirkt samstarf þjónustuaðila.
Bæjarráð tilnefnir Svanhildi Þengilsdóttur sviðsstjóra velferðarsviðs og Guðbjörgu Lindu Udengard, sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs sem fulltrúa Garðabæjar í farsældarráði. Bæjarráð tilnefnir Önnu Eygló Karlsdóttur, deildarstjóra barnaverndar, sem varamann Svanhildar og Eddu Björgu Sigurðardóttur, grunn- og tónlistarskólafulltrúa, sem varamann Guðbjargar Lindu í farsældarráði.

Velferðarráð Garðabæjar

05

5. fundur

Kynning á verkefnum farsældarráðs, Hanna Borg Jónsdóttir, verkefnastjóri farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins.

Kynning á verkefnum farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins. Hanna Borg Jónsdóttir, verkefnastjóri farsældarráðs, kynnir verkefnin og svarar fyrirspurnum nefndarmanna.