9. fundur
9. fundur
Velferðarráð Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
20.11.2024
Kl. 16:00 - 17:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- María Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Rakel Steinberg Sölvadóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Snædís Björnsdóttir - lögfræðingur
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2409068
01
Stuðningsfjölskylda fyrir fatlað barn
Ákvörðun afgreiðslufundar stuðnings- og stoðþjónustu dags. 24.9.2024 er vísað til velferðarráðs til umfjöllunar að beiðni umsækjanda.
Afgreiðslu erindis er frestað til næsta fundar velferðarráðs.
Málsnúmer 2401346
02
Samningur um þjónustu Samhjálpar við heimilislausa einstaklinga með miklar og flóknar þjónustuþarfir
Lögð fram drög að samstarfssamningi um þjónustu Samhjálpar við heimilislausa einstaklinga með miklar og flóknar þjónustuþarfir. Gert er ráð fyrir að fjárframlag Garðabæjar verði kr. 978.238, sem er 7,83% af heildarfjárhæð samningsins. Bæjarráð samþykkti samningsdrögin, með fyrirvara um að aðrir samningsaðilar geri slíkt hið sama. Málinu var vísað til velferðarsviðs til frágangs á fundi bæjarráðs 8.10.2024.
Samstarfssamningur um þjónustu Samhjálpar við heimilislausa einstaklinga með miklar og flóknar þjónustuþarfir lagður fram til kynningar.
Málsnúmer 2101189
03
Samráðsfundir velferðasviða hjá SSH
Fundargerð samráðshóps SSH um velferðarmál frá 11. september 2024 lögð fram til kynningar.
Fundargerð samráðshóps Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um velferðarmál frá 11. september 2024 lögð fram til kynningar.
Málsnúmer 2410319
04
Búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti
Framhald á umræðum um búsetuúrræði í Garðabæ.
Velferðarsvið mun hafa málið áfram til vinnslu og leggja fram minnisblað um stöðu þess á næsta fundi velferðarráðs í desember.
Málsnúmer 2306307
05
Vinna og virkni fatlaðs fólks í Garðabæ
Framhald á umræðum um vinnu og virkniúrræði í Garðabæ.
Umræður um erindi frá Múlalundi um samstarf við sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu tengt virkniúrræðum og drög að viljayfirlýsingu sem send var á sveitarfélögin. Velferðarsvið mun vinna áfram að mati á fýsileika þess að opna í Garðabæ vinnu- og virkniúrræði og leggja fram minnisblað þess efnis á fundi velferðarráðs í janúar.
Málsnúmer 2411120
06
Endurskoðun reglna um sérstakan húsnæðisstuðning
Drög að endurskoðuðum reglum um sérstakan húsnæðisstuðning lögð fram til umfjöllunar ásamt drögum að stigamati vegna undanþágu frá hlutlægum skilyrðum reglnanna.
Drög að endurskoðuðum reglum um sérstakan húsnæðisstuðning lögð fram til umfjöllunar ásamt drögum að stigamati vegna undanþágu frá hlutlægum skilyrðum reglnanna. Velferðarráð gerir ekki athugasemd við drögin og vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs.