Endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga
Ferill máls
Velferðarráð Garðabæjar
01
8. fundur
Kynning á fyrirhuguðu starfi samhæfingarteyma samkvæmt breytingum á lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Kynning á fyrirhuguðu starfi samhæfingarteyma samkvæmt breytingum á lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga. Velferðarráð leggur áherslu á að hugað verði að stafrænum innviðum Garðabæjar vegna málsins í tæka tíð.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
02
36. (2137). fundur
Drög að starfsreglum samhæfingarteyma sem tryggja eiga fagleg og skilvirk vinnubrögð samhæfingarteyma lögð fram, ásamt drögum að samningi um samstarf á sviði endurhæfingar. Um er að ræða verkefni á vegum Félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins, heilbrigðisráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga f.h. félagsþjónustu sveitarfélaga, Tryggingastofnunar, Vinnumálastofnunar og VIRK Starfsendurhæfingasjóðs ses.
Markmið vinnunnar er framtíðarfyrirkomulag um heilstæða nálgun og samþættingu þjónustu í tengslum við endurhæfingu einstaklinga. Samstarfið er mikilvægur liður í að ná því markmiði að bæta lífskjör og lífsgæði fólks sem þarf á endurhæfingarþjónustu að halda til að bæta afkomu sína og möguleika til virkni, menntunar og atvinnuþátttöku á eigin forsendum í samræmi við sáttmála ríkisstjórnarinnar frá 2021.
Bæjarráð vísar málinu til velferðarsviðs.