Mávanes 22 - stækkun á byggingarreit
Ferill máls
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
2. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Arnarness sem gerir ráð fyrir stækkun á byggingarreit lóðarinnar Mávanes 22 að lokinni grenndarkynningu.
Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt í samræmi við 3.ml.3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
2. (935). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness er varðar lóðina við Mávanes 22, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í stækkun á byggingarreit lóðar. Grenndarkynna skal tillöguna lóðarhöfum við Mávanes 19, 20, 21, 23, 24, 25 og við Blikanes 29 og 31. (Mál nr. 2305174)
Bæjarráð Garðabæjar
05
3. (2104). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness er varðar lóðina við Mávanes 22, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í stækkun á byggingarreit lóðar. Grenndarkynna skal tillöguna lóðarhöfum við Mávanes 19, 20, 21, 23, 24, 25 og við Blikanes 29 og 31.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
15. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Arnarness sem nær til lóðarinnar Mávanes 22. Umsögn deiliskipulagsráðgjafa um tillöguna lögð fram.
Með vísan í umsögn metur skipulagsnefnd tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Arnarness í samræmi við 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Mávaness 19, 20, 21, 23, 24 og 25 sem og Blikaness 29 og 31.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
13. fundur
Lögð fram tillaga lóðarhafa að breytingu á deiliskipulagi Arnarness sem nær til lóðarinnar Mávanes 22. Gert er ráð fyrir stækkun byggingarreits til suðurs.
Tillögu vísað til umsagnar deiliskipulagsráðgjafa, Hornsteina.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
7. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa Mávaness 22 um hugmynd að viðbyggingu sem nær lítillega út fyrir byggingarreit.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi tillögu í ferli óverulegrar deiliskipulagsbreytingar deiliskipulags Arnarness sem innfelur grenndarkynningu þegar sótt hefur verið um hana á grundvelli þeirrar hugmyndar sem sett er fram í fyrirspurn.