Beint í efni

Farsímasendir Helguvík - Þórukot - Dsk br. - byggingarleyfi

Málsnúmer 2306582

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

13. (946). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar frá fundi 12. september, að breytingu deiliskipulags Helguvíkur á Álftanesi að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir staðsetningu fjarskiptamasturs við gatnamót Suðurnesvegar og Höfðabrautar sem getur orðið allt að 12 metra hátt. Engar athugasemdir bárust og umsagnir gefa ekki tilefni til breytinga á tillögunni. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu á deiliskipulagi Helguvíkur í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

02

34. (2135). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar frá fundi 12. september, að breytingu deiliskipulags Helguvíkur á Álftanesi að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir staðsetningu fjarskiptamasturs við gatnamót Suðurnesvegar og Höfðabrautar sem getur orðið allt að 12 metra hátt. Engar athugasemdir bárust og umsagnir gefa ekki tilefni til breytinga á tillögunni.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu á deiliskipulagi Helguvíkur í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

11. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Helguvíkur á Álftanesi að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir staðsetningu fjarskiptamasturs við gatnamót Suðurnesvegar og Höfðabrautar sem getur orðið allt að 12 metra hátt. Engar athugasemdir bárust og umsagnir gefa ekki tilefni til breytinga á tillögunni.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu á deiliskipulagi Helguvíkur í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

17. (932). fundur

"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) vegna staðsetningar á 12 metra farsímamastri á opnu svæði vestan við Stórás og austan Ásabrautar. Vekja skal athygli á auglýsingunni með dreifibréfi í aðliggjandi hús." (Mál nr. 2302193)

Bæjarráð Garðabæjar

05

45.(2098). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Helguvíkur vegna staðsetningar á 12 metra farsímamastri á horni Suðurnesvegar og Höfðabrautar (hjá grenndargámastöð). Vekja skal athygli á auglýsingunni með dreifibréfi í aðliggjandi hús.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

14. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulag Helguvíkur sem gerir ráð fyrir staðsetningu 12 metra hás staurs fyrir farsímasenda á horni Suðurnesvegar og Höfðabrautar, hjá grenndargámastöð.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Vekja skal sérstaklega athygli á auglýsingunni með dreifibréfi í aðliggjandi hús. Skýringarmynd sem sýnir útlit og umfang staursins skal vera hluti af grenndarkynntum gögnum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

13. fundur

Frestað til næsta fundar.